Stórlaxinn hrapar í verði 28. júní 2007 06:00 Gengi bréfa í fjárfestingafélaginu Blackstone hækkaði um 20 prósent á fyrsta viðskiptadegi á föstudag. Það hefur hríðlækkað síðan og er nú undir útboðsgengi. MYND/AÐ
Bandaríska fjárfestingafélagið Blackstone Group hefur átt verra gengi að fagna í bandarísku kauphöllinni vestanhafs en vonir stóðu til. Gengið hefur hríðfallið í vikunni og er nú komið undir útboðsgengi. Fjárfestingafélagið Blackstone Group var skráð í Kauphöllina í New York í Bandaríkjunum á föstudag í síðustu viku að undangengnu velheppnuðu hlutafjárútboði með rúman 12 prósenta hlut í félaginu. Talsverðrar eftirvæntingar gætti fyrir útboðið og var mikil umframeftirspurn eftir bréfum í þessu einu af stærstu fjárfestingafélögum heims. Þegar útboðinu lauk á fimmtudag höfðu 153,3 milljónir bréfa selst í félaginu fyrir jafnvirði 258 milljarða króna á genginu 31 dalur á hlut, sem var í efri mörkum væntinga. Að útboðinu loknu sagði fréttaveitan Bloomberg Blackstone einn af stórlöxunum í bandarísku kauphöllinni með markaðsvirði upp á 33,5 milljarða dala, jafnvirði 2.100 milljarða íslenskra króna. Bloomberg varaði hins vegar við því í gær að ekki megi búast við jafn miklum vexti fjárfestingafélaga og undanfarin misseri þar sem lántökur væru orðnar kostnaðarsamar og yfirtökur því erfiðari. Rúmur helmingur af nýju hlutafé Blackstone rann í vasa Stephens Schwarzman og Peters G. Peterson en þeir stofnuðu félagið árið 1985 með 400 þúsund dali upp á vasann. Upphafsgengi bréfa Blackstone var 36,45 dalir á hlut á föstudag og hækkaði talsvert í fyrstu viðskiptum, fór hæst upp um 45 prósent. Dagshækkun var engu að síður ágæt, um 20 prósent. Gengi bréfanna hefur fallið hratt í þessari viku, þar af um 5,2 prósent á þriðjudag og endaði undir útboðsgengi við lokun viðskipta. Lækkanaferlið hélt áfram í gær og stóð gengið í kringum 30 dali á hlut um miðjan dag.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira