Fá ekki pláss í leikskóla sökum þess að erlend börn hafa forgang Höskuldur Kári Schram skrifar 13. júní 2007 14:57 Erlend börn hafa forgang í Hafnarfirði. MYND/365
Dæmi eru um að börn íslenskra foreldra fái ekki pláss í leikskólum í Hafnarfirði þar sem erlend börn ganga fyrir. Fræðslustjóri Hafnarfjarðarbæjar segir æskilegast að börn af erlendum uppruna komist sem fyrst inn í leikskóla til að flýta fyrir aðlögun að íslensku samfélagi. „Það er talið mjög æskilegt að börn af erlendum uppruna komist sem fyrst inn í skólann," sagði Magnús Baldursson, fræðslustjóri Hafnarfjarðarbæjar, í samtali við Vísi. „Við erum með ákveðnar reglur varðandi forgang. Börn af erlendum uppruna ganga þannig fyrir sem og börn einstæðra foreldra. Hvert tilviki er þó metið sérstaklega." Verið er að vinna úr umsóknum um pláss í leikskólum í Hafnarfirði fyrir næsta vetur. Að sögn Magnúsar eru alltaf einhverjir biðlistar en markmiðið er að öll börn fædd árið 2005 og fyrr fái pláss. Dæmi eru um að börn íslenskra foreldra fái ekki pláss í leikskólum Hafnarfjarðar næsta haust þar sem erlend börn ganga fyrir. Í einu tilviki um er að ræða 18 mánaða gamalt barn. Þegar foreldra þess leituðu skýringa hjá bæjaryfirvöldum fengust þau svör að þau þyrftu að bíða þar sem erlend börn hefðu verið tekin fram fyrir. Magnús segir það stefnu bæjaryfirvalda að öll 18 mánaða gömul börn og eldri fái pláss á leikskóla. Nú sé verið að bæta við 40 plássum fyrir næsta haust. „Markmiðið er að öll 18 mánaða gömul börn og eldri fái pláss. Ég veit hins vegar ekki hvort við náum því markmiði fyrir næsta haust." Alls voru um 11 þúsund börn í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári. Þar af voru 873 með erlent móðurmál.Samkvæmt upplýsingum frá mennta- og leikskólasviði Reykjavíkurborgar hafa erlend börn ekki sérstakan forgang að leikskólaplássi í borginni.
Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Sökk í mýri við Stokkseyri Innlent Fleiri fréttir Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Sjá meira