Innlent

Níu sóttu um embætti sóknarprests í Tjarnaprestakalli

Níu umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Tjarnaprestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi. Embættið veitist frá 1. september næskomandi til fimm ára.

Þeir sem sóttu um eru:

  1. Cand. theol Aðalsteinn Þorvaldsson
  2. Séra Bára Friðriksdóttir
  3. Cand. theol Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir
  4. Séra Carlos A. Ferrer
  5. Séra Elínborg Gísladóttir
  6. Séra Hans Markús Hafsteinsson
  7. Séra Sigfús Baldvin Ingvason
  8. Séra Skírnir Garðarsson
  9. Séra Þórhildur Ólafs

Dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í embættið til fimm ára að fenginni niðurstöðu valnefndar. Valnefnd skipa níu fulltrúar úr prestakallinu, auk prófasts Kjalarnesprófastsdæmis og vígslubiskups Skálhotlsbiskupsdæmis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×