Beastiae publicas Jónas Bjarnason skrifar 14. nóvember 2007 18:56 Umræðan Orkumál Við mörlandar höfum gjörnýtt landsins gæði til að geta lifað af. Bændur hirtu alla snærisspotta og létu sauðféð naga alla bletti, en sjálfir felldu þeir skógana. Svo grófu menn sig niður í jörðina, bókstaflega, með því að byggja torfbæi djúpt og refta með rekaviði og þakið úr torfi. Þannig drógu menn svörðinn yfir sig eins og sæng og bæir líktust þúftum. Útlendir menn dáðust að nýtingunni. Eldsneyti var mór og tað, en eftir að kolin komu breyttist allt og varð kolvitlaust. Fyrir 100 árum var mikil fátækt og örfá heimili hæf til að hýsa stórmenni. Heimspekingurinn Wittgenstein undraðist þá, að menn gætu yfirleitt lifað í landinu. Á ferð um Suðurland gat hann skermað sig af frá glaumi og glundri menningarinnar og hugsað skýrt. Áreitis frá kapphlaupi iðnjöfra gætti ekki og Baróninn frá Hvítárvöllum boðaði meiriháttar hagræðingu í landbúnaði og fékk engu framgengt; dapurleg örlög hans eru samtvinnuð sögu Íslands. Já, hagræðing í landbúnaði var dauð hugmynd og er að hluta enn. Og Einar Benediktsson lifði á rangri öld með Titanfélagið. - En breytingar voru í nánd, höfn í Reykjavík og gufuskip. En svo breytti jarðvarminn öllu. Á millistríðsárunum hófu menn lagningu leiðslna fyrir heitt vatn frá Reykjalundi til bæjarins og það var sem hendi væri veifað. Jarðhiti til að kynda heila borg var bylting. Svo tók Jóhannes Zoëga í HR við og bauð Reykvíkingum upp á ódýrasta heitavatn sögunnar. Saga Íslendinga er íbland orkuannáll. Orkuútrás og peningainnrásOrkan er háð ýmsum lögmálum, sem eru torskiljanleg. Sérstaklega er fyrirbærið entrópía dularfullt; stuðull sem varðar orkutap við flutning frá einu ástandi til annars. Hjálmari Árnasyni fv. þingmanni var næsta ókunnugt um þennan tapstuðul og rak áróður fyrir vetni sem eldsneyti. Það virtist undursamlegt, útöndun hreint vatn. En í reynd gefur það nýtingu orku 25% og engar tilsnikkanir duga til að breyta lögmálum. Nýorkufyrirtæki geta svosem prófað vetnisbíla með niðurgreiddu rafmagni og svo reiknað út tapið. - En nú er upphafinn nýr vísdómur. Ísland hefur getið sér orðs sem fyrirmynd í nýtingu jarðvarma og kaupahéðnar tala trútt og ferðamönnum er ekið til Geysis. Iðnaðarráðherra telur, að Íslendingar geti fjárfest í jarðvarma í Filippseyjum og Indónesíu fyrir 200 milljarða á ári í 10 ár. Jahérna! Fjórföld fjárlög Íslendinga. En það er tilviljun og aukaatriði, að þessi lönd eru þau spilltustu í Asíu. Á Filippseyjum hefur helmingur landsmanna innan við 2 dollara á dag og fæstir eru tengdir rafmagni. Ráðherrann hefur vísast slegið pesosinn vitlaust inn í tölvu eða reiknað með álframleiðslu. Hafa pílárar Geysis Green Energy (GGE), lítillætið leynir sér ekki, reiknað með kaupmætti fólksins eða notað tölur frá Alfreð Þorsteinssyni um risarækjueldi sem aukaafurð? Með því að nýta jarðgufu til rafmagnsframleiðslu er nýting heil 15% og 85% renna í sjóinn, en tæpast brúka menn kyndingu í hitabeltinu. Vel má vera að iðnaðarráðherra, sem bloggaði sjálfan sig sem pólitískt villidýr, hafi áttað sig á þessu í hanastélum og hæfir þá skel kjafti. Gera verður greinarmun á innfæddum og verkfræðingunum á Bæjarásnum með kaupréttarsamninga. Ætla menn sér að næla í þróunaraðstoð eyjaskeggjanna í kompaníi með GGE? Það væri vangadans við krókódíla. Vilhjálmur Bjarnason aðjúnkt spurði hvað það væri, sem verið er að selja. Óefnislegur mannauður upp á 10 milljarða? Hver er þess umkominn að hantera með og selja erfðagóss Jóhannesar Zoëga? Er það kannski kaupréttaraðallinn? - Höfum við sérstakan orkuforseta, sem slær um sig í austrinu? Eða einhverjir úr kaupréttarliðinu eða vetnisforkólfar? Þegar rætt er um orku og umhverfi er stutt í eldsneyti, en engin fær leið er til að framleiða það með rafmagni. Losun tvísýrings í löndunum er vegna brennslu jarðefna í farartækjum og varðar ekkert áform OR og GGE. Forsetinn hefur misskilið orkuframtak Íslendinga og handtak Pútins og íslensks prófessors nýlega í Moskvu. Ný gufuvirkjun jafngildir ekkert minni losun. - Ekki vantaði hávaðann vegna vetnismála þegar fv. iðnarráðherra ók um í vetnisbíl, en sagði nýlega í sjónvarpi, að orkubransinn væri haldinn flottræfilshætti. InnsláttarvillaRektor HÍ setur honum það markmið að verða einn af 100 bestu heims. Greinileg kommuvillu eins og hjá Össuri, nema markmiðin séu þeim mun heimóttarlegri í heimspekideild og fornritagrúski. Fyrst er að komast í hóp 1000 bestu. Helstu háskólar hafa allir fjölda tilraunastofa í vísindum og sæg af fræðimönnum. En í HÍ stika menn auða gangana, en eru þó að sækja í sig veðrið með nýjum greinum. Í uppsiglingu er LÍÚ-deild, en þegar er sérstök staða í kvótarétti, greidd af LÍÚ og er sjálfstæð. Síðan má benda á kennslu í skottulækningum, en þegar eru fv. kennarar farnir að selja snyrtivörur, sem fólk á að telja að séu lyf, við öllum kvillum í liðum og erfiðu þvagláti. Íhaldssamir læknar viðurkenna ekki óhefðbundin lyf úr íslenskri náttúru og verður því deildin að vera sjálfstæð. Einn selur megrunarlyf, eins konar vítamínbætt alfa alfa. Megrunarkúrar eru nú vel við hæfi þegar einstakir menn eru að gera allt vitlaust í orkumálum.Höfundur er efnaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þetta þarftu að vita: 12 atriði Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun Falið heimsveldi Al Thani-fjölskyldunnar Finnur Th. Eiríksson Skoðun Hið landlæga fúsk Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Fimm ár í feluleik Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun Óeðlileg völd og áhrif stórra útgerðarfyrirtækja Oddný G. Harðardóttir Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza Birgir Finnsson Skoðun Meðsek um þjóðarmorð vegna aðgerðaleysis? Pétur Heimisson Skoðun Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Öryggismenning – hjartað í ábyrgri ferðaþjónustu Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Falið heimsveldi Al Thani-fjölskyldunnar Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare skrifar Skoðun Hið landlæga fúsk Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Þetta þarftu að vita: 12 atriði Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Ég frétti af konu Gunnhildur Sveinsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur ESB-sinna leiðréttar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann skrifar Skoðun Akademísk kurteisi á tímum þjóðarmorðs Finnur Ulf Dellsén skrifar Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson skrifar Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Normið á ekki síðasta orðið Katrín Íris Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hinir miklu lýðræðissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar? Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun
Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir Skoðun
Skoðun Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Öryggismenning – hjartað í ábyrgri ferðaþjónustu Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar
Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare skrifar
Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar
Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun
Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir Skoðun