Tap í takt við spár Óli Kristján Ármannsson skrifar 3. nóvember 2007 06:00 Hannes Smárason forstjóri FL Group Hannes kynnti afkomu FL Group eftir þriðja ársfjórðung á fundi í Iðuhúsinu við Lækjargötu í Reykjavík í gærmorgun. Fram kom að heildareignir félagsins jukust um 40,5 prósent fyrstu níu mánuði ársins, eru 369,4 milljarðar króna. Fréttablaðið/GVA
Bókfært tap FL Group á þriðja ársfjórðungi nemur 27,1 milljarði króna, á pari við meðalspá greiningardeilda bankanna. Hannes Smárason forstjóri FL Group segir að í uppgjörið endurspegla punktstöðu á mörkuðum enda fari félagið þá leið að færa allar skráðar eignir á markaðsvirði. Hagnaður á hlut er neikvæður upp á 3,6 krónur á þriðja ársfjórðungi hjá FL Group, en um 50 aura sé horft til fyrstu níu mánuða ársins. Bókfært tap á fjórðungnum nemur 27,1 milljarði króna. Tap fyrstu níu mánuðina er fjórir milljarðar króna.Tap félagsins er mjög í samræmi við spá greiningardeilda bankanna, en meðalspá þeirra hjóðaði upp á 27,6 milljarða króna tap á fjórðungnum. Hannes segir óvarlegt að draga of miklar ályktanir af tapi þriðja ársfjórðungs, en í því endurspeglist i raun uppgjörsaðferðin sem félagið beitir þar sem eignir séu bókfærðar á markaðsverði hverjum tíma. Önnur fjárfestingarfélög beita gjarnan svokallaðri hlutdeildaraðferð, en þá hefur verðmæti undirliggjandi eigna ekki áhrif á afkomuna. Hannes segir ekki útilokað að félagið taki að hluta upp hlutdeildaraðferð síðar. Jafnframt bendir Hannes á að gæði undirliggjandi eigna félagsins séu eftir sem áður mikil og þau félög standi styrkum stoðum. „Nefna má Glitni, Commerzbank og AMR sem dæmi um félög sem öll skila afburðaniðurstöðu á þessu ári. Hlutabréfaverð þeirra hefur hins vegar lækkað sem aftur skilar sér í neikvæðri afkomu af fjárfestingum okkar. Við höfum hins vegar fremur horft á það sem ákveðið tækifæri og höfum á því fulla trú að markaðsvirði þeirra muni á endanum endurspegla gæði þeirra.“ Þá kom fram á kynningu FL Group að endurmetnar hefðu verið óskráðar eignir FL Group til hækkunar upp á þrjá milljarða króna. Hannes segir að beitt hafi verið mjög varlegu endurmati sem leitt hafi til hækkunar á Geysi Green Energy, Refresco og House of Fraser, en lækkunar á fjárfestingafélaginu Unity Investment. „Þarna teljum við áfram mikil tækifæri,“ segir Hannes og bætir við að uppfærsla á Refresco hafi til dæmis verið mjög hófleg. Hann telur líklegt að Refresco fengi svipaða verðlagningu og Bakkavör á markaði hér, enda starfi þau á svipuðu sviði. „Ekki væri óeðlilegt að ætla að heildarvirði yrði í kring um 60 milljarðar og af því eigum við helming. Þarna má því segja að við séum með 30 milljarða eign sem bókfærð er á fimm milljarða.“ Hannes segist gera ráð fyrir að fjármálamarkaðir verði brokkgengir enn um sinn og því megi áfram búast við sveiflum í verði hlutabréfa. „Ótal breitur hafa áhrif á markaðina, svo sem olíuverð. Þá þurfum við að klára að sjá uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung innan úr bönkunum til að hreinsa þar út óvissu. Auknar upplýsingar frá þeim hafa haft róandi áhrif og við þurfum að sjá fyrir endann á þessum hlutum áður en kominn er grundvöllur fyrir uppbyggingu á ný,“ segir Hannes, en þess má geta að Commerzbank, þar sem FL Group á 4,3 prósenta hlut, birtir uppgjör í næstu viku. Hannes segir FL Group standa mjög vel með yfir 40 prósenta eiginfjárhlutfall, sem sé það hæsta meðal fjárfestingarfélaga hér. „Um þessar mundir erum við með um 55 milljarða króna í handbæru fé og vel fjármagnaðir til lengri tíma. Þá erum við með mjög mikið af auðseljanlegum eignum og þurfum því í raun ekki á nýju fjármagni að halda næstu tvö árin til að standa undir skuldbindingum.“
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira