Stýrivextir líklega óbreyttir 28. mars 2007 06:15 Seðlabanki Íslands
Greiningardeildir bankanna gera ráð fyrir því að Seðlabanki Íslands haldi stýrivöxtum óbreyttum á vaxtaákvörðunardegi sínum á morgun, fimmtudag. Stýrivextir standa nú í 14,25 prósentum. Landsbankinn og Kaupþing telja að lækkunarferli stýrivaxta hefjist ekki fyrr en í júlí, en Glitnir telur að það gæti hafist strax í maí. Sérfræðingar segjast þó hafa orðið fyrir nokkrum vonbrigðum með þróun húsnæðismarkaðar sem ekki hafi hægt nægilega á sér. Þannig er endurfjármögnun íbúðarhúsnæðis talin stór þáttur í að viðhalda hér þensluástandi sem á móti ýti undir verðbólgu. Þá var undirliggjandi verðbólga nokkuð há í síðustu mælingu Hagstofunnar, 7,7 prósent, en þá er búið að draga frá tímabundin áhrif af lækkunum á virðisaukaskatti í byrjun mánaðarins. Það er því búist við nokkuð hörðum umvöndunartóni úr Seðlabankanum, en auk þess sem tekin verður ákvörðun um vexti heldur bankinn aðalfund sinn og gefur út efnahagsrit sitt, Peningamál. Þar verður farið yfir þróun hagstærða og mat lagt á hvert líklegt sé að hagkerfið haldi í framhaldinu. Seðlabankinn miðar ákvarðanir sínar í vaxtamálum við að ná verðbólgu niður í þolmörk bankans, sem liggja í 2,5 prósentum. Greiningardeild Glitnis segir að eftir að vaxtalækkunarferli bankans hefjist komi stýrivextir til með að lækka með auknum hraða þegar líður á árið. „Reiknum við með að bankinn verði kominn með stýrivexti sína niður í 11,5 prósent í lok þessa árs og 6,5 prósent í lok árs 2008.“ Landsbankinn spáir því að í lok þessa árs standi stýrivextir í 11 prósentum.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Sjá meira