Beðið eftir nýju stórgreiðslukerfi 23. ágúst 2007 05:00 Seðlabankar evrulanda, taka upp nýtt stórgreiðslukerfi fyrir evrur í byrjun næsta árs. Af þeim sökum var ákveðið bíða með að færa evruuppgjör í OMX kauphöllinni til Finnlands.
Ekki hefði verið í samræmi við meginreglu fyrirkomulag greiðslumiðlunar hefði Seðlabanki Íslands tekið að sér uppgjör viðskipta með hlutabréf í evrum í kauphöllinni hér. Í maí á næsta ári stendur til að Seðlabanki Finnlands taki að sér uppgjörið, en þá hefur hann, ásamt Seðlabanka Evrópu tekið í notkun nýtt miðlægt stórgreiðslukerfi fyrir evrur, svonefnt Target2 kerfi. Í skýrslu Seðlabanka Íslands, Fjármálastöðugleiki 2007, sem út kom í vor, kemur fram að meginreglan sé að „öll kerfislega mikilvæg greiðslukerfi séu endanlega gerð upp í gegnum stórgreiðslukerfi seðlabanka í viðkomandi landi og miðast við að uppgjör fari fram með fjármunum seðlabanka þ.e. í gjaldmiðli landsins.“ Fram kemur að til að uppgjör greiðslufyrirmæla geti farið fram í evrum þurfi sá banki sem annast og ábyrgist endanlegt uppgjör viðskiptanna að hafa öruggt aðgengi að evrum. „Seðlabanki Íslands hefur ekki ótakmarkað aðgengi að annarri mynt en krónunni,“ segir Guðmundur Kr. Tómasson, staðgengill framkvæmdastjóra fjármálasviðs Seðlabankans og formaður samráðsnefndar um samskipti verðbréfamiðstöðva, kauphalla og Seðlabanka Íslands. Guðmundur segir að við þá breytingu að hlutabréf verði hér skráð í evrum einskorðist aðkoma Seðlabankans við að hafa eftirlit með kerfislega mikilvægum greiðslukerfum, en þau þurfa að uppfylla margvísleg skilyrði. Undir það eftirlit fellur meðal annars evruuppgjör kauphallarviðskipta sem hefst í haust til bráðabirgða hjá Landsbanka Íslands, en færist svo til Seðlabanka Finnlands, samkvæmt uppslýsingum Verðbréfaskráningar Íslands.
Mest lesið Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira