Átta prósenta hækkun á fjórum dögum 23. ágúst 2007 06:00 Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 8,2 prósent síðustu fjóra markaðsdaga. Sérfræðingur Landsbankans býst við áframhaldandi flökti á mörkuðum, en segir ástandið gott til lengri tíma litið. MYND/Valli
Hlutabréf héldu áfram að hækka í Kauphöll Íslands í gær, fjórða daginn í röð. Úrvalsvísitalan hefur nú hækkað um 8,2 prósent frá því að morgni föstudags í síðustu viku. Exista hefur hækkað um sextán prósent á fjórum dögum. Sérfræðingur segir ástandið til langs tíma gott, þótt áfram megi búast við nokkru flökti. Mestar hækkanir urðu á bréfum í Existu í gær; 4,46 prósent. Hlutabréf í FL Group hækkuðu um tæp þrjú prósent, Straumur um 2,72 prósent og Atlantic Petroleum um 2,17 prósent. Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,17 prósent. Þá styrktist krónan um 1,74 prósent og stendur gengisvísitalan í rétt rúmum 120 stigum. Gengi krónunnar og hlutabréfa hafa farið hönd í hönd undanfarna daga; þegar krónan hefur styrkst, hafa hlutabréf í kauphöll Íslands hækkað. „Við bentum á í síðustu viku að kauptækifæri væru farin að myndast á markaðnum. Þær lækkanir sem urðu um daginn voru ef til vill full snarpar. Við teljum að nú sé úrvalsvísitalan á réttu róli“, segir Katrín Friðriksdóttir, sérfræðingur greiningardeildar Landsbankans. Exista hefur hækkað mest allra félaga undanfarna daga. Bréf í félaginu hafa hækkað um sextán prósent síðan á föstudaginn. Kaupþing hefur hækkað um ellefu prósent á sama tímabili og bréf í Landsbankanum um rétt tæp níu prósent. Þessar miklu hækkanir koma í kjölfar þriggja vikna lækkunarhrinu sem endaði þann 16. ágúst síðastlðin. Hafði úrvalsvísitalan þá lækkað um tæp sextán prósent frá því 23. júlí, þegar hún stóð í 9.006 stigum. Af samtölum við verðbréfamiðlara má greina hversu mikið spágildi þeir telja þróun á erlendum hlutabréfamörkuðum hafa fyrir hérlend bréf. Nánast sé hægt að athuga hvernig asíski markaðurinn hafi lokað, og hvernig þeir evrópsku hafi opnað, og spá síðan fyrir um gengi bréf í Kauphöll Íslands þann daginn „Fylgnin við erlenda markaði er orðinn svo miklu meiri en áður“, segir Katrín. Hún telur að áfram verði nokkrar sveiflur á hlutabréfamörkuðum, enda ekki enn komið í ljós hver endanleg áhrif ástandsins á bandaríska fasteignalánamarkaðnum verða „Við sáum áhrifin af þeirri ákvörðun Bandaríska seðlabankans að lækka skammmtímavexti, þá fylgdu miklar hækkanir í kjölfarið. Við vitum aldrei hverju verður kastað inn á markaðinn og því er svolítið erfitt að spá. Það eru tækifæri á innlenda markaðnum, en líka talsverð áhætta. Til langs tíma litið er hins vegar hægt að segja ástandið gott.“
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira