Sampo vill sænskan bankasamruna 10. ágúst 2007 03:00
Stjórnendur finnska fjármálafyrirtækisins Sampo Group, sem er að fimmtungshluta í eigu Existu, vilja sjá bankasamruna í Svíþjóð. Björn Wahlroos, forstjóri Sampo, segir að sér lítist vel á slá Nordea, stærsta fjármálafyrirtæki Norðurlanda, saman við Handelsbanken. Sampo er annar stærsti hluthafinn í Nordea á eftir sænska ríkinu með 3,7 prósenta hlut sem metinn er á 100 milljarða króna. „Mesta samlegðin liggur með Handelsbanken en þar með er ekki sagt að sú niðurstaða sé sú líklegasta. Það eru einnig mikil tækifæri milli Nordea og SEB," segir Björn í samtali við Dagens Nyheter. Þörfin á bankasamrunum í Skandinavíu hefyr verið rædd lengi en Sampo er tilbúið að bíða, enda er kaup félagsins í Nordea hugsuð til lengri tíma. Björn telur ekki nauðsynlegt að sækjast eftir sæti í stjórn Nordea þótt eignarhluturinn dygði til þess. Af Sampo er það annars að frétta að félagið hagnaðist um 214 milljónir evra, um nítján milljarða króna á öðrum ársfjórðungi. Þetta var 37 prósent meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Tryggingastarfsemi félagsins gekk vel og þá jukust fjárfestingatekjur sökum góðs árferðis á mörkuðum. Á fyrstu sex mánuðunum ársins hagnaðist Sampo um 3,27 milljarða evra, jafnvirði 288 milljarða króna. Hafa ber í huga að þessi mikli hagnaður er að stærstum hluta tilkominn vegna söluhagnaðar af Sampo Bank í byrjun þessa árs. Sampo situr nú á 350 milljörðum króna sem sérfræðingar búasta við að nýttir verði til frekari fjárfestinga á norrænum bankamarkaði.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira