Kaupþing á þrjá kosti í Stórabrandi 28. apríl 2007 06:15 Hreiðar Már Sigurðsson. Hlutur Kaupþings í Storebrand er metinn á fimmtíu milljarða króna. MYND/Valli
Kaupþing er komið upp með 18,5 prósenta hlut í norska fjármálafyrirtækinu Storebrand. Markaðsvirði hlutarins er fimmtíu milljarðar króna. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, segir að þrír kostir séu í stöðunni hjá bankanum. „Við gætum selt hlutabréfin okkar. Í öðru lagi gætum við reynt að taka yfir fyrirtækið. Í þriðja lagi gætum við keypt upp í tuttugu prósent og meðhöndlað félagið sem hlutdeildarfélag.“ Varðandi síðasta kostinn nefnir Hreiðar Már að Kaupþing losni við dægursveiflur á markaðsvirði Storebrand en tæki í staðinn fimmtungshluta af hagnaði norska félagsins inn í bækur bankans. „Tíminn verður að leiða það í ljós,“ segir Hreiðar spurður hvort einn möguleiki sé líklegri en annar. Kaupþing hagnaðist ágætlega á hlutnum á fyrsta ársfjórðungi en hann gaf gengishagnað upp á ríflega 4,5 milljarða króna. Kaupþingsmenn hafa verið spurðir hvort þeir telji líklegt að bankinn fái heimild frá norskum yfirvöldum til að fara upp fyrir fimmtungshlut. „Við teljum að það sé mjög líklegt og sjáum ekkert gegn því að norsk yfirvöld leyfi okkur það. Við erum með miklu meiri fjárhagslegan styrkleika en Storebrand og undir eftirliti fjármálayfirvalda í tíu löndum.“ Árið 2004 fékk Kaupþing – þá miklu minni banki en hann er í dag – leyfi frá dönskum fjármálayfirvöldum til að taka yfir FIH, þriðja stærsta banka Danmerkur.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira