Viðskipti innlent

Taka alþjóðlegt sambankalán

Alfesca hefur lokið endurfjármögnun félagsins með alþjóðlegu sambankaláni upp á 280 milljónir evra. Í tilkynningu frá félaginu segir að árlegur sparnaður vegna lægri fjármagnskostnaðar sé áætlaður um 1,5 milljón evra eða um 125 milljónir íslenskra króna. Lánið styrki fjárhagsstöðu Alfesca, myndi sveigjanleika og skapi betri aðstöðu til þess að efla og stækka félagið.



Kaupþing og franski bankinn Natixis voru umsjónaraðilar lánsins og sáu einnig um að selja það til alþjóðlegra bankastofnana.

Alls tóku tíu bankastofnanir þátt í endurfjármögnuninni. Nýja lánið kom til á fjórða ársfjórðungi nýliðins reikningsárs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×