DV og Birtíngur sameinuð að mestu 18. júlí 2007 04:15 Samstarf DV og Birtíngs, sem meðal annars gefur út Mannlíf, Hús og híbýli og Ísafold, verður aukið til muna á næstu misserum.
Rekstur DV og Birtíngs, sem meðal annars gefur út Mannlíf, Hús og híbýli og Ísafold, verður samtvinnaður að verulegu leyti á næstu misserum. Hjálmur, dótturfélag Baugs, á tæplega níutíu prósenta hlut í báðum félögum. Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Hjálms, gegnir jafnframt stjórnarformennsku bæði í DV og Birtíngi. Hann staðfestir að breytinga sé að vænta innan félaganna. „Við erum að skoða möguleika um aukið samstarf félaganna í því augnamiði að draga úr kostnaði og hagræða," segir Hreinn. „Þó er ekki verið að sameina félögin, hvað svo sem síðar verður." Gert er ráð fyrir að DV flytji úr Brautarholti að Lynghálsi 5, þar sem Birtingur er til húsa. Hjálmar Blöndal, framkvæmdastjóri DV, segir ætlunina að sameina húsnæði, rekstur tölvukerfa, ljósmyndadeild, fjármálaumsýslu, dreifikerfi og aðra stóra verkþætti. Þá verði öflug heimasíða opnuð undir slóðinni www.dv.is með efni tengdum báðum félögum. „Við erum fyrst og fremst að leita eftir því að ná fram hagræðingu í rekstri DV. Það liggur beint við að auka samstarf við það fyrirtæki sem hefur mjög svipað eignarhald," segir Hjálmar. „Við teljum okkur geta náð fram mikilli hagræðingu í rekstri með þessu." Framkvæmdastjórar DV og Birtíngs, þau Hjálmar Blöndal og Elín Ragnarsdóttir, munu áfram sitja í sætum sínum. Ritstjórnarlegt vald verður jafnframt áfram á höndum þeirra ritstjóra sem starfa á hverjum miðli fyrir sig. Áætluð sameiginleg velta Birtíngs og DV er á bilinu 1.300 til 1.400 milljónir króna. Í næstu viku verði stjórnarfundir haldnir í báðum félögum. Frekari frétta af útfærslu samvinnunnar er að vænta eftir þá fundi.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira