Viðskipti innlent

Novator nær fullum yfirráðum yfir Actavis

Sindri Sindrason tilkynnir um það á blaðamannafundi undir lok síðasta mánaðar að stjórn Actavis styðji yfirtökutilboð Novators.
Sindri Sindrason tilkynnir um það á blaðamannafundi undir lok síðasta mánaðar að stjórn Actavis styðji yfirtökutilboð Novators. Markaðurinn/Anton

Upphafsstafur:Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur tryggt sér yfir 90 prósent hlutafjár í Actavis. Við þetta myndast söluskylda hjá eftirstandandi hluthöfum. Novator eignast Actavis að fullu og félagið verður í framhaldinu skráð af markaði. Yfirtakan er sú stærsta í Kauphöllinni hér til þessa.



Yfirtökutilboð Actavis hljóðar upp á 1,075 evrur á hvern hlut. Hluthafar sem ekki hafa samþykkt tilboðið hafa frest þar til á morgun til að ganga frá samþykki, öðrum kosti fellur niður réttur þeirra á viðbótargreiðslu komi til þess að Novator selji hlut sinn innan 12 mánaða.



Björgólfur Thor Björgólfsson segir ekkert liggja fyrir um mögulegan samruna við önnur félög. „En við munum skoða hvað er að gerast á markaðnum hverju sinni og vega og meta okkar stöðu í ljósi þess,“ segir hann. Komið hefur fram að ákvörðun Novators um að taka félagið yfir og skrá af markaði var ekki síst tekin með það að leiðarljósi að létta af félaginu upplýsingaskyldu sem annars kynni að hefta félagið í samningaviðræðum við önnur félög.



Björgólfur segir sölu á fjárfestingum í Austur-Evrópu og yfirtökuna á Actavis nú ekki til marks um miklar breytingar. „Actavis verður áfram stærsta fjárfestingin hjá mér. Við höldum sama stjórnendateymi og við höldum áfram að vinna að því eins vel og við getum að rækta fyrirtækið,“ segir hann og telur breytt eignarhald í raun tæknilega breytingu hvað hann sjálfan varðar. Hann er þó að vonum feginn að nú sjái fyrir endann á yfirtökuferlinu. „Gott er að vera búinn með þetta til að geta einbeitt sér að sókninni,“ segir hann, en þakkar um leið hluthöfum í Actavis samferðina og bendir á að verðmæti Actavis hafi 28-faldast fá árinu 1999.

Gangurinn í yfirtökunni segir Björgólfur að hafi verið eins og við var að búast þótt seinagangur hafi verið í kerfinu við að ná til baka áskriftum. „Þetta er langfjölmennasta hlutafélag sem verið er að taka af markaði og á lokadegi sprakk kerfið, þannig að ekki hafðist undan við að taka við. Við þurftum því að lengja tilboðið, en annars hefur þetta verið eins og við hefðum kosið og við sátt við ferlið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×