Einungis 255 þúsund skiluðu sér 18. júlí 2007 04:00 Frestur til að innleysa tíu, fimmtíu og hundrað króna seðla í bönkum og sparisjóðum er runninn út. Mest skilaði sér af hundrað króna seðlum, um 250 þúsund krónur. Tíu krónu seðlar voru innleystir fyrir fimm þúsund krónur, en ekki einn einasti fimmtíu króna seðill.
Alls hafa verið innleystar 255 þúsund krónur í tíu, fimmtíu og hundrað króna seðlum í bönkum og sparisjóðum landsins. Seðlarnir voru innkallaðir með reglugerð Seðlabankans frá árinu 2005. Frestur til að innleysa seðlana í bönkum og sparisjóðum rann út 1. júní síðastliðinn en hægt verður að framvísa þeim í Seðlabankanum í minnst eitt ár til viðbótar. Enn eru því 118,3 milljónir króna í umferð af þessum seðlum, þar af langmest af gömlu hundrað króna seðlunum, eða um 95,4 milljónir króna. Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans, segir bankann í meginatriðum hafa unnið að tveimur verkefnum undanfarin ár. Öryggi þeirra seðla sem eftir standa; fimm hundruð krónur, þúsund, tvö þúsund og fimm þúsund krónur, hafi verið aukið. Þá hafi farið fram nokkurs konar tiltekt þar sem aurar hafi verið lagðir niður sem lögeyrir, og bankinn byrjað að greiða heildarfjárhæðir með heilum krónum. „Seðlarnir eru mun fullkomnari en áður var og öryggisþættirnir eru traustari en áður. Sú vinna var nauðsynleg þar sem því miður koma alltaf upp dæmi um falsanir annað slagið. Síðan erum við búin að hreinsa burt aurana, sem ekki voru í notkun." Alls eru nú í umferð tæplega 13,3 milljarðar króna í peningaseðlum og andvirði tæplega tveggja milljóna af mynt, eða rúmlega fimmtíu þúsund krónur á mann sé miðað við að Íslendingar séu þrjú hundruð þúsund. Seðlar og mynt í umferð eru um eitt prósent landsframleiðslu hér á landi „Mikið af þessum seðlum er í vörslu banka, sparisjóða og hjá verslun og þjónustu. Obbinn af veltunni í landinu er vegna kortaviðskipta en seðlarnir eru alltaf nokkuð stöðugt hlutfall af landsframleiðslu," segir Tryggvi Pálsson.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira