Yfirtöku á Actavis að ljúka 17. júlí 2007 03:00 Róbert Wessman forstjóri, Björgólfur Thor Björgólfsson stjórnarformaður og Sindri Sindrason stjórnarmaður í Actavis.
Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur tryggt sér vilyrði fyrir yfir 90 prósentum hlutafjár í Actavis, að teknu tilliti til eigin hluta og hluta í eigu Novators, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins. Með þessu lýkur yfirtökuferli Novators þar sem við 90 prósenta markið verður til söluskylda hjá eftirstandandi hluthöfum. Yfirtökutilboð Actavis hljóðaði upp á 1,075 evrur á hlut. „Samkvæmt yfirtökutilboði Novator rennur tilboðsfrestur út miðvikudaginn 18. júlí næstkomandi. Þeir hluthafar sem hafa ekki samþykkt tilboðið hafa frest fram til þess tíma til að ganga frá samþykki á grundvelli tilboðsins, að öðrum kosti öðlast þeir ekki rétt til viðbótargreiðslu ef Novator selur hlut sinn innan 12 mánaða,“ segir í tilkynningu félagsins. Björgólfur Thor Björgólfsson er að vonum feginn að nú sjái fyrir endann á yfirtökuferlinu á Actavis. „Gott er að vera búinn með þetta til að geta einbeitt sér að sókninni,“ segir hann og bætir við að hjá Actavis taki nú við keyrsla á þeirri viðskiptaáætlun sem byggð hafi verið upp undanfarin ár. „Ég vil hins vegar nota tækifærið og þakka hluthöfum sem staðið hafa með okkur í þessari fjárfestingu,“ segir Björgólfur og bendir á að verðmæti Actavis hafi 28-faldast fá árinu 1999. „Þúsundir Íslendinga hafa mokgrætt á þessu. Þeim þakka ég fyrir samferðina, enda hefur verið gaman að taka þátt í þessu.“ -
Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira