Kaupir stærstu Toyotasölu Dana 13. júlí 2007 05:15 Magnús Kristinsson, eigandi Toyota á Íslandi, handsalar við Kresten Krogaard-Jensen kaup á umsvifamesta söluaðila Toyota-bíla í Danmörku.
Magnús Kristinsson og Kresten Krogsgard-Jensen skrifuðu í gær undir samning þess efnis að M. Kristinsson Danmark A/S, félag Magnúsar, keypti 80 prósenta hlut í danska fyrirtækinu Krogsgaard-Jensen. Magnús er eigandi Toyota á Íslandi og Krogsgaard-Jensen stærsti söluaðili Toyota í Danmörku. Kaupverð fyrirtækisins er sagt trúnaðarmál, en Straumur Danmark hafði milligöngu um viðskiptin og Landsbanki Íslands sá um fjármögnun. Fram kemur í tilkynningu að Krogsgaard hafi í fyrra selt um 1.560 nýja bíla, eða átta prósent af nýskráðum Toyota-bifreiðum í Danmörku. Til samanburðar seldi Toyota á Íslandi 5.285 nýja bíla á síðasta ári. Hér er fjórði hver nýr bíll Toyota og segir Magnús hollt að setja markið hátt og stefna á viðlíka árangur ytra. Hann segir þó ólíku saman að jafna í samkeppni þar því 30 fyrirtæki selji Toyota-bíla á um 70 sölustððvum. Nokkuð er einnig í land í vinsældum Toyota í Danmörku því þar er tíundi hver nýr bíll þeirrar tegundar. „En við sjáum hér mörg spennandi tækifæri til að nýta þekkingu og reynslu sem til hefur orðið hjá Toyota á Íslandi," segir Magnús. Krogsgaard-Jensen er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem hefur selt Dönum bíla í þrjár kynslóðir. Það státar af fimm útsölustöðum og þjónustustöðvum á Kaupmannahafnarsvæðinu og er þar af leiðandi stærst og umsvifamest af þeim fyrirtækjum sem selja Toyota-bifreiðar í Danmörku. Velta Krogsgaard nam um 5 milljörðum íslenskra króna í fyrra og eru starfsmenn sagðir vera um 130 talsins. Magnús segir mikið gleðiefni að hafa lokið kaupunum, en samningsferlið hafi verið bæði langt og strangt, enda töluverðar tilfinningar í spilunum þegar gróin fjölskyldufyrirtæki eru seld. „Menn þurfa tíma til að átta sig á hlutunum við slíkar aðstæður," segir hann og kveðst til að mynda hafa frestað fundum með stjórnendum þangað til í næstu viku. Með í kaupunum á 80 prósenta hlutnum í danska fyrirtækinu fylgja sýningarsalir, verkstæði og lagerar. Þá eignast fyrirtæki Magnúsar 100 prósent í fasteignafélagi KKJ Ejendommen, og fasteignum sem eru í eigu Krogsgaard Holding. Helstu stjórnendur Krogsgaard eru sagðir munu starfa áfram hjá fyrirtækinu.
Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira