Gengisþróun ýtti undir hagnað 13. júlí 2007 06:00 Orku- og veitufyrirtæki eru talin með í samanburði Hagstofunnar á ársreikningum fyrirtækja árin 2004 og 2005 í nýútkomnum Hagtíðindum. MYND/Vilhelm
Hagnaður fyrirtækja jókst milli áranna 2004 og 2005 samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Bætt afkoma er að nokkru rakin til styrkingar á gengi krónunnar. Þegar litið er til rekstrarhagnaðar fyrirtækja sem voru í rekstri bæði árin, sýnir paraður samanburður að hagnaður hafi numið 14,1 prósenti af tekjum árið 2005, en 10,9 prósentum árið áður. „Hagnaður af reglulegri starfsemi þessara fyrirtækja var 14,4 prósent af tekjum árið 2005 og 11,3 prósent árið 2004," segir í nýútkomnum Hagtíðindum. „Þegar litið er á afkomu allra fyrirtækja í gagnasafninu 27.629 árið 2005 og 29.352 árið 2004, er hún hlutfallslega mjög svipuð og afkoma þeirra sem voru í pöruðum samanburði," segir Hagstofan. Fram kemur í ritinu að á árinu 2005 hafi gengi krónunnar styrkst um 7,2 prósent, sem sé svipað og árið áður þegar gengið styrktist um 8,4 prósent. „Þrátt fyrir að gengi íslensku krónunnar gagnvart erlendum myntum hafi hækkað jukust fjármagnsgjöld að frádregnum fjáreignatekjum 22.720 fyrirtækja, annarra en orku-, fjármála- og tryggingafyrirtækja um 14,1 milljarð króna árið 2005. Rekstrarhagnaður sömu fyrirtækja var 16,5 milljörðum króna meiri árið 2005 en árið 2004," segir Hagstofan. Í yfirliti Hagstofunnar eru fyrirtæki í öllum atvinnurekstri, að meðtöldum flestum fyrirtækjarekstri hins opinbera. Starfsemi lífeyrissjóða er hins vegar undanskilin.
Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira