Sjö laxar á sama spún 11. júlí 2007 00:45
Ég er meiri aflamaður í eðli mínu en sportari. Ef ekki væri fyrir viðskiptasamböndin, þá myndi ég nú varla sveifla flugustöng heilu dagana heltimbraður og bitinn af mývargi. Máltíðirnar á kvöldin eru hins vegar fínar og koníakið og vindlarnir eru konunglegir og reykingabann á skemmtistöðum hefur gert slíkar syndir í sveitasælunni enn stórkostlegri. Svo sitjum við strákarnir og rekjum afrekin hver fyrir öðrum, bæði í veiði og á markaði. Þar er hvorki af sér dregið, né úr nokkru dregið eins og vera ber. Þessar sagnastundir vilja nú stundum dragast fram á nóttina og því lágt á manni risið þegar skriðið er út til veiða að morgni. Adrenalínið sem fylgir því að bitið sé á hjá manni er besta meðalið við drunga hamrandi timburmanna, en því hefur lítið verið að heilsa að undanförnu í vatnslitlum ám sem lítið sem ekkert gefa þrátt fyrir himinhá veiðileyfin. Maður getur ekki bara hugsað um að skemmta sér í lífinu og eitt af hlutverkum manns í tilverunni er að ala börnin upp til að kunna það sem til þarf svo árangur náist í lífinu, svo sem golf og laxveiði. Ég ók því sem leið lá austur í Ölfusá og keypti veiðileyfi fyrir kúk og kanil og svo settumst við undir vegginn á sláturhúsinu með spún og köstuðum í blíðunni. Það var ekki liðinn langur tími þegar sá fyrsti beit á. Þar var kominn feitur sjóbirtingur. Næsti olli ekki minni gleði, en þar reið undirritaður á vaðið og landaði þessum líka feita og fína laxi eftir nokkur átök. Áður en yfir lauk vorum við búin að landa sjö löxum og tveimur urriðum. Þegar við héldum heim með aflann, þá hugsaði ég með mér að sennilega væri ég á einhvern hátt útvalinn af almættinu til að afla vel hvernig sem allt veltist. Alla vega höfðu bréfin mín hækkað hressilega á meðan ég dró hvern laxinn á fætur öðrum á land við sláturhússvegginn á Selfossi. Sumir eru bara fæddir til að sigra. Spákaupmaðurinn á horninu
Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Sjá meira