Erfiðir tímar víða á landsbyggðinni 11. júlí 2007 02:45
Hafliði Helgason skrifar,Því er stundum haldið á lofti að ein höfuðástæða þess að Íslendingar þurfi sérstakan gjaldmiðil sé sú að hagsveiflan hér á landi sé svo ólík þeirri í Evrópu. Þessu hefur verið svarað með því að benda á að hagsveifla hér á landi myndi að öllum líkindum laga sig að þeirri evrópsku væri hér sami gjaldmiðill. Að hinu hafa færri hugað að hér á landi er varla hægt að tala um að allt landið sé í sömu hagsveiflu. Þannig er ljóst að þensla undanfarinna ára, með háu vaxtastigi og sterku gengi krónunnar hefur komið hart niður á svæðum þar sem smá fyrirtæki í sjávarútvegi eru uppistaða atvinnulífsins. Hagvaxtarmælingar sýna glöggt að til að mynda Vestfirðir hafa ekki notið hagvaxtar meðan suðvesturhornið og Austfirðir hafa notið mikils hagvaxtar og eignamyndunar. Í því ljósi er skiljanlegt að fjármunir séu settir í samgöngur á slíkum svæðum þegar byggðirnar verða fyrir áfalli líkt og því sem niðurskurður aflaheimilda er fyrir þær. Samtök atvinnnulífsins hafa bent á að bestu mótvægisaðgerðirnar felist í lægra gengi á krónunni. Háir stýrivextir eru helsta ástæða gengisins og því beinist ábendingin að lægri vöxtum og þar með lægra gengi. Þetta er réttmæt ábending og ljóst að aðlögun hagkerfisins eftir þensluna er brýn. Langvarandi hágengis- og hávaxtatímabil mun drepa bæði nýgræðing og jafnvel vænleg fyrirtæki sem þegar eru komin á legg. Hinu ber að taka með meiri varúð sem SA bendir á, en það er að forsendur séu nú fyrir lægri stýrivöxtum. Líklegast er að Seðlabankinn hefji lækkun á fyrri hluta næsta árs. Fyrr verður það varla. Það er athyglisvert að á sama tíma og þrýst er á Seðlabankann um að lækka vexti eru fyrstu vísbendingar að koma fram um áhrif lækkunar virðisaukaskatts á matvæli. Þar virðist raungerast sú skólabókarhagfræði að lækkun neysluskatts í bullandi þenslu skili sér illa til neytenda. Þegar árar eins og gert hefur undanfarin misseri er það höfuðverkefni stjórnvalda að taka helst alla þá fjármuni sem tök eru á út úr hringrás hagkerfisins. Skattalækkanir, hverju nafni sem þær nefnast, fara beint inn í þá hringrás aftur og viðhalda þensluástandi með tilheyrandi svigrúmi til að hleypa bróðurparti allra vandamála í rekstri fyrirtækja, beint út í verðlagið. Það er því mikilvægt að þegar verkefni eins og þau sem boðuð eru til að mæta erfiðleikum á landsbyggðinni eru sett á stað, sé aðhalds gætt á öðrum sviðum. Að öðrum kosti seinka menn tíma vaxtalækkana með tilheyrandi skipbroti þeirra sem veikast standa.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira