Forstjóralaunin fryst 11. júlí 2007 05:30 John Browne sagði starfi sínu lausu sem forstjóri BP í maí. Hér er hann ásamt eftirmanni sínum, Tony Hayward, sem situr vinstra megin við hann. Markaðurinn/AFP
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar, Breski olíurisinn BP hefur fryst launagreiðslur til Johns Browne, fyrrum forstjóra fyrirtækisins, og Johns Manzoni, fyrrum yfirmanns olíuvinnslu og markaðsstjóra hjá fyrirtækinu. Ákvörðunin var tekin eftir að hluthafar fyrirtækisins höfðuðu mál gegn núverandi og fyrrverandi stjórnendum fyrirtækisins. Hluthafarnir segja olíuleka hjá fyrirtækinu við Prudhoe-flóa í Alaska í ágúst í fyrra og sprengingu við olíuhreinsunarstöð í Texas í Bandaríkjunum árið 2005 hafa valdið því að gengi bréfa þeirra í fyrirtækinu hefur lækkað mjög í verði. Stjórnendur olíufyrirtækisins eru sakaðir um vanrækslu í starfi og of mikla aðhaldssemi í rekstri fyrirtækisins sem hafi komið alvarlega niður á fyrirtækinu. Tæring var í olíuleiðslum fyrirtækisins í Alaska sem olli því að leiðslurnar brustu. Olíuframleiðsla fyrirtækisins skertist um átta prósent. Munar um minna enda voru áhrifin þau að heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði mikið á tímabilinu. Fyrirtækið vinnur nú að því að hætta olíuvinnslu við flóann. Sprengingin í Texas var hins vegar mun alvarlegra mál enda er stjórnendum fyrirtækisins gefið að sök að hafa dregið mjög úr öryggismálum í olíuhreinsunarstöðinni í hagræðingarskyni. Fimmtán starfsmenn létust í sprengingunni og standa málaferli enn yfir gegn stjórnendum BP vegna þessa. Þetta þykja ekki góðar fréttir fyrir Browne, sem hætti óvænt störfum hjá BP í maí síðastliðnum, tveimur mánuðum fyrr en hann hafði ráðgert eftir að hann tapaði dómsmáli í Bretlandi þar sem hulunni var svipt af samkynhneigð hans og kynnum hans af ástmanni. Browne átti í ástarsambandi við kanadískan mann sem seldi frétt sína af sambandinu til fjölmiðla í Bretlandi. Browne vildi koma í veg fyrir að umfjöllun fjölmiðla næði inn fyrir svefnherbergisdyr hans, fór í mál við blaðið en tapaði og afréð því að hætta hjá BP. Á sama tíma sagði hann starfi sínu lausu hjá bandaríska fjárfestingarbankanum Goldman Sachs en þar hafði hann setið samhliða starfi sínu í forstjórastól BP. Þrátt fyrir hrakfarir á síðustu árum sínum hjá BP þykir Browne með farsælli forstjórum í heimi en hann var hæstlaunaði forstjóri Bretlandseyja í forstjóratíð sinni hjá BP. Hann starfar nú sem stjórnarformaður bandaríska fjárfestingarfélagsins Apax Partners. Samhliða uppsögninni hjá BP gaf Browne frá sérstaka aukagreiðslu upp á allt að tvo milljarða íslenskra króna auk kaupréttarsamnings. Þá átti hann sömuleiðis að fá jafnvirði rúmra 180 milljóna króna á yfirstandandi fjárhagsári í starfslokagreiðslur. Ekki er útlit fyrir að hann fái þær, í bili að minnsta kosti.
Mest lesið Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira