Geysir tilkynnir um olíufund 4. júlí 2007 06:15 Gunnlaugur, sem brátt tekur sæti í stjórn Geysis Petroleum, segir mörg verkefni fyrir dyrum í olíuleit og vinnslu.
Olía hefur fundist í tilraunaborunum Antrim Energy í Norðursjó, en þar á Geysir Petroleum ehf. tíu prósenta hlut. Stærsti hluthafi Geysis Petroleum er svo aftur Straumborg ehf., félag í eigu fjölskyldu Jóns Helga Guðmundssonar, sem fer með rétt tæplega fimmtungshlut. Olían fannst á 3.340 metra dýpi að því er fram kemur í tilkynningu. Borunin er hluti af tilraunaborunum sem ætlað er að ljúki innan hálfs mánaðar og verður þá upplýst frekar um magn olíunnar sem fundist hefur, að sögn Gunnlaugs Jónssonar hjá GJ Fjármálaráðgjöf/Norvest, en hann tekur innan tíðar sæti í stjórn Geysis Petroleum. Unnið er að sameiningu Geysis Petroleum við Sagex Petroleum og InOil. Að sameiningu lokinni er stefnt að skráningu sameinaðs félags í kauphöllina í Ósló. „Þetta er nokkuð merkilegur olíufundur. Í fyrra fundum við í samstarfi við aðra olíu og erum nú að bora á nokkuð stærra svæði og vonumst til þess að finna meiri olíu en í fyrra,“ segir Gunnlaugur, en nú er verið að mæla olíuflæðið í nýju holunni. Hann segir fundinn einnig skipta máli fyrir félagið NorEnergy sem Straumborg á líka stærstan hlut í. „Bæði félögin eru þátttakendur í þessum verkefnum með um tíu prósent hvort á þessu svæði. Geysir er íslenskt félag stjórnað af Norðmönnum, en NorEnergy norskt félag stjórnað af Kanadamönnum.“ Gunnlaugur segir starfsemina ganga vel í báðum félögum og að í kjölfar olíufundar og mögulegrar vinnslu hafi á þessu ári, síðan Straumborg kom að málum, orðið gríðarleg verðmætaaukning í félögunum.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira