Dagurinn er bjartur 28. júní 2007 06:00 Sjötti þingmaður Suðvesturkjördæmis, Ögmundur Jónasson, ræðir um Fagra Ísland stefnu Samfylkingarinnar í umhverfismálum í Fréttablaðinu 26. júní sl. Síðan er skipt um gír og þingmaðurinn segir orðrétt: „Samkvæmt staðhæfingum forstjóra Alcans, Michel Jacques, hafði bæjarstjórinn frumkvæði að því að bjóða Alcan að stækka álverið í Straumsvík með því að byggja á landfyllingu.“ Með tilliti til þessa ber að upplýsa þingmanninn að það hefur legið fyrir lengi að hafnarstjórn sé að skoða þróun á hafnarstæðinu við Straumsvík, með landfyllingum út frá lóð álversins, eins og kemur fram í staðfestu aðalskipulagi. Hafnarfjarðarhöfn vinnur nú að frekari útfærslu á fyllingum fyrir mögulegt framtíðarhafnarsvæði, sem yrði þá valkostur á móti þeim tillögum sem kynntar hafa verið um hafnarstæði út frá landi Óttarstaða vestan við víkina. Fjölmörg fyrirtæki leita eftir því að komast á hafnarsvæði í Hafnarfirði þar sem önnur stærsta höfnin á höfuðborgarsvæðinu er og gert ráð fyrir samkvæmt staðfestu svæðaskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Þeir sem fylgst hafa með, hefur verið fullkunnugt um þessar hugmyndir Hafnarfjarðarhafnar um langt árabil. Umræðan, um tillögur að stækkun Straumsvíkurhafnar eða nýja höfn á vesturbakkanum, er því ekki ný af nálinni. Vel má vera að forstjóri Alcan Metal Group líkt eins og fjölmargir aðrir hér á landi, jafnvel einstaka þingmenn kjördæmisins, séu ekki vel að sér varðandi skipulagsmál í Hafnarfirði og hafi því ekki heyrt af þessum landfyllingaráformum m.t.t. þróunar hafnarmannvirkja. Þrátt fyrir að deiliskipulagið sem kosið var um 31. mars sl. hafi ekki verið auglýst skv. skipulags- og byggingarlögum, enda niðurstaða í lýðræðislegri íbúakosningu ljós, þá mun skipulagsumræða halda áfram í Hafnarfirði. Þar hafa allir sinn rétt, íbúar sem fyrirtæki. Í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum verið úthlutað hundruðum lóða til iðnaðar- og þjónustufyrirtækja. Það mun gerast áfram, á landfyllingum (ef af þeim verður) svo og á öðrum svæðum ofar í landi. Það mun gerast algjörlega óháð því hvað kanadískir forstjórar tjá sig um, enda umræddar hugmyndir ekki nýjar af nálinni eins og 6. þingmaður Suðvesturkjördæmis heldur. Samfylkingarfólk er aldrei hrætt við umræðu um umhverfismál, skipulagsmál hvað þá heldur lýðræðismál. Höfundur er bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og þingmaður Suðvesturkjördæmis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Sjötti þingmaður Suðvesturkjördæmis, Ögmundur Jónasson, ræðir um Fagra Ísland stefnu Samfylkingarinnar í umhverfismálum í Fréttablaðinu 26. júní sl. Síðan er skipt um gír og þingmaðurinn segir orðrétt: „Samkvæmt staðhæfingum forstjóra Alcans, Michel Jacques, hafði bæjarstjórinn frumkvæði að því að bjóða Alcan að stækka álverið í Straumsvík með því að byggja á landfyllingu.“ Með tilliti til þessa ber að upplýsa þingmanninn að það hefur legið fyrir lengi að hafnarstjórn sé að skoða þróun á hafnarstæðinu við Straumsvík, með landfyllingum út frá lóð álversins, eins og kemur fram í staðfestu aðalskipulagi. Hafnarfjarðarhöfn vinnur nú að frekari útfærslu á fyllingum fyrir mögulegt framtíðarhafnarsvæði, sem yrði þá valkostur á móti þeim tillögum sem kynntar hafa verið um hafnarstæði út frá landi Óttarstaða vestan við víkina. Fjölmörg fyrirtæki leita eftir því að komast á hafnarsvæði í Hafnarfirði þar sem önnur stærsta höfnin á höfuðborgarsvæðinu er og gert ráð fyrir samkvæmt staðfestu svæðaskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Þeir sem fylgst hafa með, hefur verið fullkunnugt um þessar hugmyndir Hafnarfjarðarhafnar um langt árabil. Umræðan, um tillögur að stækkun Straumsvíkurhafnar eða nýja höfn á vesturbakkanum, er því ekki ný af nálinni. Vel má vera að forstjóri Alcan Metal Group líkt eins og fjölmargir aðrir hér á landi, jafnvel einstaka þingmenn kjördæmisins, séu ekki vel að sér varðandi skipulagsmál í Hafnarfirði og hafi því ekki heyrt af þessum landfyllingaráformum m.t.t. þróunar hafnarmannvirkja. Þrátt fyrir að deiliskipulagið sem kosið var um 31. mars sl. hafi ekki verið auglýst skv. skipulags- og byggingarlögum, enda niðurstaða í lýðræðislegri íbúakosningu ljós, þá mun skipulagsumræða halda áfram í Hafnarfirði. Þar hafa allir sinn rétt, íbúar sem fyrirtæki. Í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum verið úthlutað hundruðum lóða til iðnaðar- og þjónustufyrirtækja. Það mun gerast áfram, á landfyllingum (ef af þeim verður) svo og á öðrum svæðum ofar í landi. Það mun gerast algjörlega óháð því hvað kanadískir forstjórar tjá sig um, enda umræddar hugmyndir ekki nýjar af nálinni eins og 6. þingmaður Suðvesturkjördæmis heldur. Samfylkingarfólk er aldrei hrætt við umræðu um umhverfismál, skipulagsmál hvað þá heldur lýðræðismál. Höfundur er bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og þingmaður Suðvesturkjördæmis.
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar