Straumur til austurs 21. júní 2007 01:15 Jan Sýkora, forstjóri og stjórnarformaður Wood & Company, og William Fall, forstjóri Straums-Burðaráss. Fréttablaðið / GVA
Straumur-Burðarás tilkynnti í gær um kaup á fimmtíu prósenta hlut í tékkneska fjárfestingarbankanum Wood & Company. Höfuðstöðvar bankans eru í Prag en hann hefur einnig starfsemi í Slóvakíu og Póllandi. Þau skilyrði fylgja kaupunum að Straumur hafi kauprétt að eftirstandandi hlutum. Þau kaup munu fara fram í síðasta lagi á fyrri hluta ársins 2011. Kaupverð var ekki gefið upp. Greiðsla mun fara fram með reiðufé og hlutabréfum í Straumi. Á kynningarfundi vegna kaupanna í gær sagði William Fall, forstjóri Straums-Burðaráss, þau hafa ótvíræða kosti. Mikið virði sé fólgið í kaupunum fyrir hluthafa félagsins, þótt þau muni hafa óteljandi fjárhagsleg áhrif á bankann. William sagði mikla vaxtarmöguleika felast í að sameina kosti bankanna tveggja. Straumur fái aðgang að ört stækkandi mörkuðum og auki hlutfalla vaxta- og þóknunartekna af heildartekjum. Wood & Company muni njóta góðs af sterkum efnahagsreikningi Straums sem muni styðja við öran vöxt félagsins. Þá geti báðir bankar aukið verulega við vöruframboð sitt. Meðal viðskiptavina Wood & Company eru fjárfestar og fyrirtæki í Mið- og Austur-Evrópu. Þá hafa jafnframt alþjóðlegir stofnanafjárfestar og fjárfestingarbankar leitað til bankans til að öðlast aðgang að mörkuðum í Austur- og Mið-Evrópu. Bankinn hefur um þrjátíu prósenta markaðshlutdeild í kauphöllinni í Prag. Þá hefur það einnig aðild að kauphöllunum í Búdapest, Varsjá, Búkarest og Ljúblíana, sem og kauphöllum Austurríkis og Þýskalands. Straumur-Burðarás stefnir að því að verða leiðandi norrænn fjárfestingabanki. William sagði kaupin á Wood & Company vel samræmast þeirri stefnu. „Til að ná forystu á norrænum markaði er okkur nauðsynlegt að vera virk á mörkuðum sem hafa áhrif á Norðurlöndin."
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira