Útlitið dekkra en áður talið 20. júní 2007 05:30
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar Örlítið meiri svartsýni gætir í endurskoðaðri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins en áður. Ekki er tekið tillit til hugsanlegs samdráttar í kvótaúthlutunum. Ef af honum verður má gera ráð fyrir enn dekkri tölum. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur á þessu ári verði neikvæður um 0,1 prósent, þrátt fyrir stóraukinn útflutning áls. Á árinu 2008 muni áframhaldandi bati í utanríkisviðskiptum og samdráttur í þjóðarútgjöldum skila tveggja prósenta hagvexti. Árið 2009, þegar þjóðarútgjöld hætti að dragast saman, verði hagvöxtur orðinn 2,1 prósent. „Þessi spá er ekki ólík hagspá okkar frá því fyrr í mánuðinum,“ segir Lúðvík Elíasson, sérfræðingur hjá greiningardeild Landsbankans. „Hún er hins vegar töluvert langt frá nýrri spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þar var gert ráð fyrir tveggja til þriggja prósenta hagvexti nú í ár. Þeir virðast hafa haldið að meiri kraftur væri í innlendri eftirspurn en nýjustu hagtölur benda til.“ Búist er við að viðskiptahalli dragist hratt saman í ár og verði sextán prósent af landsframleiðslu vegna viðsnúnings í vöruviðskiptum. Árið 2008 er reiknað með að hallinn verði kominn niður í 10,2 prósent og átta prósent árið 2009. Í spánni kemur fram að skýr merki séu um að ójafnvægi í hagkerfinu sé að minnka. Þrátt fyrir að búist sé við minni hagvexti og meira atvinnuleysi er gert ráð fyrir meiri verðbólgu en í fyrri spá. Búist er við að verðbólga á þessu ári verði 3,7 prósent að meðaltali í ár, komist á 2,5 prósent verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands í lok ársins og verði nálægt því markmiði árin 2008 og 2009. Atvinnuleysi, sem var 1,3 prósent af vinnuafli árið 2006, muni hækka í 1,6 prósent í ár. Þá er búist við því að atvinnuleysið verði 3,9 prósent á næsta ári og 4,5 prósent árið 2008. Svo hátt atvinnuleysi hefur ekki mælst hér á landi frá því árið 1995 þegar það fór upp í fimm prósent. Lúðvík segir tölur um verðbólgu og atvinnuleysi koma nokkuð á óvart. „Flestir eru sammála um að það sé enn töluverð spenna í hagkerfinu og það hafi vaxið umfram getu. Þess vegna ætti að vera eðlilegt að nokkur ár með lágum hagvexti bættust við án þess að það hefði mikil áhrif á undirliggjandi hagstærðir, það er atvinnuleysi og verðbólgu. Meiri slaki í hagkerfinu, sterkara gengi og meira atvinnuleysi heldur en í fyrri spá ráðuneytisins ætti allt að leiða til minni verðbólgu. Engu að síður er verið að hækka spána fyrir öll árin. Það bendir til þess að gert sé ráð fyrir vaxandi launaþrýstingi þrátt fyrir vaxandi atvinnuleysi. Það er frekar óvenjulegt.“
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira