FL Group tapaði 100 milljónum á Bang & Olufsen 31. maí 2007 05:00 MYND/Heiða
FL Group hefur selt alla hluti sína, 10,76 prósent, í danska raftækjaframleiðandanum Bang & Olufsen fyrir 10,2 milljarða króna. Tap FL Group á fjárfestingunni nemur um 100 milljónum króna. FL Group kom inn í hlutahafahóp Bang & Olufsen í febrúar í fyrra með kaupum á 8,2 prósenta hlut fyrir 7,5 milljarða króna. Það bætti fljótlega við sig og jók hann smám saman í 10,76 prósent. Afkoma Bang og Olufsen hefur verið undir væntingum og hefur gengi bréfa í félaginu lækkað um sjö prósent frá því FL Group kom inn í hluthafahópinn í fyrra. Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi FL Group, segir ljóst að félagið hafi ekki hagnast á kaupunum. Megi vænta betri ávöxtunar á öðrum vettvangi og hafi því verið ákveðið að selja bréfin til hóps danskra og alþjóðlegra stofnanafjárfesta. Að sögn Kristjáns er ætlunin að setja söluandvirði bréfanna í verkefni þar sem peningarnir vinni betur fyrir sér en hjá Bang & Olufsen „Svo þurfum við alltaf á því að halda að geta fært pening úr einu verkefni í annað og leitum alltaf eftir eins góðri ávöxtun og við getum fengið,“ segir hann og bætir við að FL Group sé ætíð að skoða ný verkefni. Slíkt krefjist fjármagns. Danska blaðið Börsen greindi frá því í gærmorgun að FL Group hefði tapað jafnvirði um 670 milljóna íslenskra króna á viðskiptunum. Kristján segir svo ekki vera. Hafi blaðið ekki tekið tillit til arðgreiðslna og mismunandi gengis á bréfum í Bang & Olufsen við kaup FL Group og hafi því verið farið fram á að Börsen leiðrétti skrif sín. Kristján sagði það engu að síður rétt að FL Group hefði tapað á fjárfestingunni. Fjárhæðin væri hins vegar mun lægri, um 100 milljóna íslenskra króna.
Mest lesið „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira