EMI-útgáfan samþykkir yfirtökuboð 23. maí 2007 01:00 EMI gefur út tónlist fjölda flytjenda. Þar eru þekktastir Bítlarnir, Coldplay og Robbie Williams svo einhverjir eru nefndir.
Stjórn bresku tónlistarútgáfunnar EMI samþykki á mánudag að taka yfirtökutilboði fjárfestingasjóðsins Terra Firma. Tilboðið hljóðar upp á 265 pens á hlut, eða 2,4 milljarða punda, jafnvirði 298 milljarða íslenskra króna. Gengi bréfa í félaginu rauk upp um 23 pens í kjölfarið og endaði í 271 pensi á hlut við lokun markaða. Það mun vera vísbending um að einhverjir hluthafa hafi reiknað með öðru og hærra boði í félagið.EMI hefur átt við rekstrarvanda að stríða vegna minnkandi tekna og skilaði tapi upp á 260 milljónir punda, jafnvirði rúmra 32 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Þá stefnir ekki í gott ár hjá fyrirtækinu en það hefur gefið út tvær neikvæðar afkomuviðvaranir á þessu ári. Stjórnendur tónlistarútgáfunnar ákváðu að setja EMI í söluferli fyrr á árinu og opnuðu bækurnar fyrir hugsanlegum kaupendum í síðustu viku. Nokkrir fjárfestingasjóðir og bandaríski útgáfurisinn Warner Music glugguðu í bækur EMI en gerðu ekki tilboð. Tilboð Terra Firma kemur nokkuð á óvart enda hefur félagið ekki fjárfest í tónlistar- og afþreyingaiðnaði. Fréttaveitan Bloomberg hefur hins vegar eftir heimildamönnum sem tengjast Guy Hands, forstjóra félagsins, að hann hafi skoðað tónlistarútgáfuna síðastliðin tvö ár og látið vaða þegar færi gafst.
Mest lesið Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira