Íslendingar stórtækir í Danmörku 23. maí 2007 05:00 Agnar agnarsson Dansk-íslenska fyrirtækið Nordic Service Apartments er með fjölda byggingaverkefna í gangi á Norðurlöndunum. Agnar Agnarsson fasteignasali segist hafa fundið fyrir skorti á föstum dvalarstað fyrir Íslendinga sem dvelja í Kaupmannahöfn til lengri eða skemmri tíma. MYND/Anton
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Fasteignafélagið Nordic Service Apartments hefur ýtt úr vör stórum fasteignaverkefnum í hjarta Kaupmannahafnar. Og fleiri eru á teikniborðinu bæði í Noregi og í Svíþjóð. Í öðru verkefninu er um að ræða byggingu 20 íbúða húss frá grunni við Frederiksberg sem verða settar í almenna sölu en í hinu er gömlu skrifstofuhúsnæði við Vesterbro breytt í 57 hótelíbúðir á sex hæðum. Verkefnin eru gríðarstór og hleypur kostnaður á um fjórum milljörðum króna. Forsvarsmenn félagsins gefa lítið fyrir þá niðursveiflu sem sögð er vera á danska fasteignamarkaðnum og segja mikla þörf fyrir íbúðir sem þessar. Nordic Service Apartments er samstarfsverkefni Íslendinga og Dana. Rótgróið danskt þróunarfélag, Friis & Søborg, sér um að finna eignir og lóðir en Agnar Agnarsson, fasteignasali hjá Stórhús-fasteignasala, sem sérhæfir sig í aðstoð við fjárfesta í kaupum á fasteignaverkefnum, býður íslenskum kaupendum íbúðirnar til sölu. Þá kemur Byr sparisjóður að verkefninu en hann fjármagnar verkið og gengst í ábyrgðir. Agnar segir mikinn áhuga á hótelíbúðum í Kaupmannahöfn, jafnt hjá einstaklingum og fyrirtækjum og virðist sem skortur sé á íbúðum sem þessum í borginni. Íslendingar komi oft til Kaupmannahafnar, margir hverjir í viðskiptaerindum. Þeir hafi átt í erfiðleikum með að finna næsturgistingu nema á hóteli og hafi þeir vel getað hugsað sér að festa sér íbúð til kaups enda tryggi slíkt fastan samastað á ferðum til borgarinnar. Með hótelíbúðaformi er átt við að einstaklingar eða fyrirtæki kaupi íbúð í húsi og ákveða síðan hvort þeir vilji halda henni fyrir sig árið um kring eða látið sérstakt rekstrarfélag leigja hana fyrir sig til þeirra sem leita eftir gistingu í borginni til skemmri tíma. Sjálfir geti þeir tryggt sér ákveðinn tíma í íbúðinni þegar þeir sjálfir kjósa. Leigutekjur af íbúðinni renna svo í vasa íbúðaeiganda auk þess sem hlutur þeirra greiðist í hússjóð. Þegar Nordic Service Apartments festi sér húsið við Vesterbro var þar ýmis konar skrifstofustarfsemi. Helmingur hússins hefur verið rýmdur en til stendur að hreinsa afganginn þegar samningur við leigjendur rennur út. Búið er að rífa niður allt innviði að steyptum veggjum undanskildum og stendur helmingur hússins sem fokheldur. Þá verður framhlið hússins sömuleiðis smíðuð upp á nýtt nýir gluggar settir í framhliðina og frönskum svölum bætt við. Íbúðirnar eru flestar með einu herbergi. Efstu íbúðir hússins eru hins vegar á tveimur hæðum, með stórum svölum og er þaðan hægt að horfa yfir þök húsa svo langt sem augað eygir. Til stendur að afhenda hótelíbúðirnar um mitt næsta ár með öll tilheyrandi; allt frá rúmum til hnífapara, allt að óskum íbúðaeigenda. Þá mun hvers kyns þjónusta verða í boði fyrir íbúðaeigendur, svo sem þrif á íbúðunum. Að sögn Agnars eru kaupin einföld: „Aðilar geta keypt íbúðina alla eða tekið danskt fasteignalán þar sem 90 prósent af íbúðaverðinu er lánað. Síðan stofna þeir móðurfélag í Danmörku, ApS-félag, og tvö eignarhaldsfélög, eitt heima og annað í Danmörku, sem er skráður eigandi íbúðarinnar. Þegar þeir selja íbúðirnar færa þeir hagnað af sölunni yfir á dótturfélagið heima á Íslandi og greiða því 10 prósenta skatt þar en ekki í Danmörku,“ segir hann.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira