Fjárfesta í neytendageiranum 22. maí 2007 05:00 Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Icebank, og Elín Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Arev.
Eignarhaldsfélagið Arev og Icebank hafa stofnað nýjan einkafjármagnssjóð, Arev N1. Sjóðurinn hefur allt að þrjá milljarða króna til fjárfestinga í íslenskum neytendavörufyrirtækjum á sviði heildsölu, smásölu og þjónustu. Þetta mun vera eini sjóðurinn með þessu sniði hérlendis sem fjárfestir í neytendavörufyrirtækjum. Elín Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Arev, segir mikla fjárfestingamöguleika í geiranum enda hafi fáir sjóðir komið að honum með sama hætti og Arev N1. Einkafjármagnssjóðurinn mun fjárfesta fyrir 50 til 200 milljónir króna að jafnaði í hverju því fyrirtæki sem uppfylla skilyrði hans en jafnan er um að ræða fyrirtæki sem hyggja á breytingar eða sjá fram á mikinn vöxt og þurfa því á fjármagni að halda. Kaupin nema um 30 til 50 prósentum af hlutafé fyrirtækja og er stefnt að því að eiga hann í nokkur ár. Með fjárfestingunni kemur einstaklingur frá sjóðnum í stjórn fyrirtækjanna og mun hann vinna náið með stjórnendum fyrirtækja sem sjóðurinn fjárfestir í. Arev N1 er byggður á grunni eignasafns sem Eignarhaldsfélagið Arev hefur byggt upp í gegnum árin en í því eru fyrirtæki á borð við Áltak, Sól, Vínkaup, Yggdrasil og Lífsins tré.
Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Fleiri fréttir Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Sjá meira