Styttist í val á eftir-manni Buffetts 9. maí 2007 04:30 Warren Buffett annar ríkasti maður heims mun tilnefna eftirmann sinn í forstjórastól fjárfestingarfélagsins Berkshire Hathaway á næstunni. MYND/AFP
Mikil spenna var á árlegum hluthafafundi bandaríska fjárfestingarfélagsins Berkshire Hathaway í Nebraska-ríki í Bandaríkjunum á laugardag en búist er við að forstjórinn aldni Warren Buffett sem í mörg ár hefur verið annar ríkasti maður heims, tilnefni eftirmann sinn á næstunni. Fundurinn byrjaði á léttum nótum en söngvarinn Jimmy Buffett opnaði fundinn með söng. Buffett sagðist fjarskyldur ættingi milljarðamæringsins og sagði að vegna skyldleikans hefði verið ákveðið að halda forstjórastólnum innan fjölskyldunnar og því myndi hann taka við af frænda sínum. Að því loknu tók hann lag um fjárfestingarfélagið og þau fyrirtæki sem heyra undir það. Að söngnum loknum steig hinn 76 ára Warren Buffett á svið. Vísaði hann skyldleikanum á bug og sagðist ekki vera á förum í bráð. Buffett gerði því næst grein fyrir afkomu sjóðsins sem skilaði 2,6 milljarða dala, 165 milljarða króna, hagnaði á fyrsta ársfjórðungi, sem er tólf prósentum meira en á sama tíma í fyrra. Að þessu loknu kom Buffett að vali á forstjóra sjóðsins en hann er talinn ætla að ráða þrjá til starfans. Buffett er um þessar mundir að fara yfir umsóknir um stöðu eftirmanns síns en á milli 600 til 700 umsóknir hafa borist í hús.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Festa og Gildi vilja sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira