Ofhitnun í Indlandi 4. maí 2007 03:30 Úr indversku kauphöllinni
Indverska hagkerfið sýnir klassísk merki um ofhitnun í efnahagslífinu. Hagvöxtur hefur verið mikill og verðbólga aukist jafnt og þétt. Grípa þarf til aðgerða til að verðbólga fari ekki úr böndunum. Þetta segir í skýrslu alþjóðlega matsfyrirtækisins Moody‘s um indversk efnahagsmál sem kom út undir lok síðustu viku. Hagvöxtur á Indlandi nemur tæpum níu prósentum á sama tíma og verðbólga stendur í rúmum sex prósentum. Þetta er meira en æskilegt er, að mati Moody‘s, sem telur horfur engu að síður stöðugar þrátt fyrir að eftirspurn á innanlandsmarkaði sé langt umfram framboð sem hafi skilað sér í auknum viðskiptahalla. Þá hafa fjárfestingar erlendra aðila aukist svo mjög að erlendur gjaldeyrir indverskra fjármálastofnana er í sögulegum hæðum. Í skýrslunni segir að indverska hagkerfið sé viðkvæmt af þessum sökum en matsfyrirtækið er hæfilega bjartsýnt á að indverska ríkisstjórnin standist álagið með einkavæðingu ríkisfyrirtækja á næstu árum. Því hafi hins vegar verið ítrekað slegið á frest síðastliðin þrjú ár vegna mótstöðu vinstriflokka á indverska þinginu.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent