Hagkerfið sagt leita í jafnvægisástand 25. apríl 2007 05:30 Þorsteinn, sem er skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, kynnti í gærmorgun nýja og endurskoðaða þjóðhagsspá ráðuneytisins. MYND/Hörður
Óli Kristján Ármannsson skrifar Gert er ráð fyrir miklum samdrætti í fjárfestingu við lok núverandi stóriðjuframkvæmda og smávægilegum samdrætti í einkaneyslu á þessu ári í nýrri þjóðhagspá efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Hagkerfið er sagt leita jafnvægis í því sem kalla mætti mjúkri lendingu þar sem verðbólga muni ná 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabankans á síðari hluta þessa árs og haldist innan marka næstu ár. „Samdráttur þjóðarútgjalda verður mun meiri en í síðustu niðursveiflu, af stærðargráðu sem ekki hefur sést áður,“ segir Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofunnar, en hann kynnti spána í gærmorgun. Engu að síður er því spáð að á þessu ári verði hagvöxtur tæplega eitt prósent vegna viðsnúnings í utanríkisviðskiptum. Í fyrra var hagvöxturinn 2,6 prósent og 5,5 prósent árið áður. Þá er því spáð að viðskiptahallinn dragist hratt saman í ár og verði tæp 16 prósent landsframleiðslu vegna stórfelldrar aukningar í útflutningi á áli og mikils samdráttar innflutnings. Í fyrra nam viðskiptahallinn 26,7 prósentum af landsframleiðslu. Þorsteinn segir við hæfi að tala um „snertilendingu hagkerfisins“ en samkvæmt spánni dragast þjóðarútgjöld saman á næsta ári, en aukast á ný 2009 með vaxandi einkaneyslu og jafnvægi í fjárfestingu. „Vegna áframhaldandi bata í utanríkisviðskiptum er spáð að hagvöxtur verði tæp 3 prósent bæði árin,“ segir í spánni. Um leið og dregur úr framleiðsluspennu eru líkur á að atvinnuleysi aukist heldur, en í fyrra var það að meðaltali 1,3 prósent. Á næsta og þarnæsta ári er spáð 3,2 og 3,4 prósenta atvinnuleysi og segir Þorsteinn það nær því sem eðlilegt geti talist. „Jafnvægisstig verðbólgu er nálægt þremur prósentum,“ segir hann. Spá ráðuneytisins er engu að síður nokkurri óvissu háð. Til að mynda er í henni ekki gert ráð fyrir stóriðjuframkvæmdum. Komi til slíkra framkvæmda verða áhrifin á hagkerfið engu að síður minni en af þeim framkvæmdum sem nú er að ljúka því á hagsveifluna juku breytingar á húsnæðislánamarkaði og aðrar ytri aðstæður. „Miðað við að stjórnvöld beiti viðeigandi mótvægisaðgerðum og að ekki komi til ófyrirséðra búhnykkja á framkvæmdatímanum, má gera ráð fyrir að slíkar framkvæmdir fái samræmst stöðugleika í efnahagslífinu,“ segir í þjóðhagsspánni. Þorsteinn segir helstu óvissuþættina í þjóðhagsspánni snerta frekari stóriðjuframkvæmdir, ástand á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum, gengi krónunnar og endurnýjun kjarasamninga á næsta ári. Hann segir horfur þó víða góðar á þessum sviðum, mikil viðskipti með krónuna á gjaldeyrismörkuðum gefi tilefni til bjartsýni og að á nýlegum fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi komið fram að horfur þættu góðar á fjármagnsmörkuðum víðast hvar.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira