Norska fjármálaeftirlitið fettir fingur út í Kaupþing 13. apríl 2007 09:30 Kaupþing. Mynd/Stefán
Kredittilsynet, norska fjármálaeftirlitið, varar við því að Kaupþing eignist meira en fimmtungshlut í fjármálafyrirtækinu Storebrand og óttast um stöðu félagsins ef Kaupþing auki hlut sinn. Þetta kemur fram í skýrslu frá stofnuninni sem Dagens Nærlingsliv greinir frá. Kaupþing er stærsti hluthafinn í Storebrand með áætlaðan sextán prósenta hlut sem metinn er á um 44 milljarða króna. Stofnunin segir að Kaupþing skorti reynslu af tryggingingarekstri sem meginstarfsemi Storebrands byggist á, skorti eigið fé og sé of áhættusækinn. Þá hefur hún áhyggjur af bankinn sé viðkvæmur gagnvart skakkaföllum í brothættu íslensku hagkerfi. Kaupþing hefur heimild til að eignast allt að fimmtungshlut í Storebrand, rétt eins og norska vátryggingafélagið Gjensidige, en hafði óskað eftir leyfi að eignast fjórðungshlut sem eftirlitið hafnaði. Að mati fréttaskýrenda er afstaða Kredittilsynet talin styrkja stöðu Gjensidige ef til yfirtöku kemur. „Við erum ekki sammála norska fjármálaeftirlitinu og teljum að niðurstöður þeirra séu ekki byggðar á traustum grunni," segir Jónas Sigurgeirsson, forstöðumaður samskiptasviðs Kaupþings í samtali við Fréttablaðið. Jónas gefur lítið fyrir meint reynsluleysi Kaupþings af tryggingarekstri og bendir á að bankinn hafi tekið þátt í vátrygginga, eigi KB Líf og í stjórn bankans sitji forstjóri eins stærsta tryggingafélags Svíþjóðar. Talið er að tilgangur fjárfestingar Kaupþings í Storebrand sé öðrum þræði sá að eignast hlutabréf í öflugu fjármálafyrirtæki á góðu verði fremur en að taka félagið yfir. Á fundi stjórnenda bankans með markaðsaðilum í Lundúnum á dögunum kom fram að fjárfestingargeta Kaupþings sé um 270 milljarðar króna sem er sama fjárhæð og markaðsvirði Storebrands. Viðbrögð norska fjármálaeftirlitsins koma ef til vill ekki á óvart. Reuters-fréttastofan bendir á að sögulega séð hafi ítök ríkisins verið sterk í norsku athafnalífi og oft hefur stjórnvöldum tekist að koma í veg fyrir að erlendir fjárfestar tækju yfir norsk fjármála- og iðnaðarfyrirtæki. Kaupþing er því ekki eitt um að fá móttökur sem þessar.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira