Tek öllu með fyrirvara á afmælisdaginn 1. apríl 2007 13:30 „Ég hef engar áhyggjur af því að húsið fyllist af fólki í tilefni dagsins því það trúir enginn að ég eigi afmæli,“ segir Sigurgeir Skúlason landfræðingur sem á stórafmæli í dag, 1. apríl. „Ég er fimmtugur, það víst. Allavega segir mamma það,“ segir Sigurgeir og bætir við að hann hafi gaman af því að eiga afmæli á þessum degi. „Í seinni tíð hef ég haft gaman af þessu en sem krakki var þetta ekki eins gaman því þá var ég reglulega plataður á afmælisdaginn. Nú er það ég sem plata aðra,“ segir Sigurgeir hress í bragði. Aðspurður um sögur tengdum aprílgöbbum sem hann hefur orðið fyrir segir hann af mörgu að taka. „Ég var alinn upp í sveit og oft var ég plataður til þess að hlaupa upp í fjárhús þar sem mér hafði verið sagt að kindin mín væri borin. Oftast var þetta eitthvað í tengslum við sveitina og fyrir vikið tók ég öllu með fyrirvara á þessum degi. Sama hvað ég heyrði.“ Í dag hefur Sigurgeir snúið vörn í sókn og platar sjálfur á afmælisdaginn sinn. Hann vill þó ekki taka undir að hann sé stríðinn. „Ekki að mínu mati en börnin mín eru örugglega ósammála mér. Þau segja að ég sé alltaf að plata þau eitthvað, kannski af því að ég fæddist á þessum degi.“ Sigurgeir ætlar að eyða afmælisdeginum í að horfa á son sinn keppa í körfubolta með Fjölni. „Ég ætla að njóta þess að horfa á hann keppa á Íslandsmótinu yfir helgina. Dóttir mín er einnig að keppa en því miður næ ég ekki að horfa á hana líka. Ég hugsa að ég geri lítið annað yfir helgina enda miklu skemmtilegra að horfa á börnin keppa en halda einhverjar veislu. Svo er alltaf möguleiki á að konan eldi góðan mat í tilefni dagsins.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
„Ég hef engar áhyggjur af því að húsið fyllist af fólki í tilefni dagsins því það trúir enginn að ég eigi afmæli,“ segir Sigurgeir Skúlason landfræðingur sem á stórafmæli í dag, 1. apríl. „Ég er fimmtugur, það víst. Allavega segir mamma það,“ segir Sigurgeir og bætir við að hann hafi gaman af því að eiga afmæli á þessum degi. „Í seinni tíð hef ég haft gaman af þessu en sem krakki var þetta ekki eins gaman því þá var ég reglulega plataður á afmælisdaginn. Nú er það ég sem plata aðra,“ segir Sigurgeir hress í bragði. Aðspurður um sögur tengdum aprílgöbbum sem hann hefur orðið fyrir segir hann af mörgu að taka. „Ég var alinn upp í sveit og oft var ég plataður til þess að hlaupa upp í fjárhús þar sem mér hafði verið sagt að kindin mín væri borin. Oftast var þetta eitthvað í tengslum við sveitina og fyrir vikið tók ég öllu með fyrirvara á þessum degi. Sama hvað ég heyrði.“ Í dag hefur Sigurgeir snúið vörn í sókn og platar sjálfur á afmælisdaginn sinn. Hann vill þó ekki taka undir að hann sé stríðinn. „Ekki að mínu mati en börnin mín eru örugglega ósammála mér. Þau segja að ég sé alltaf að plata þau eitthvað, kannski af því að ég fæddist á þessum degi.“ Sigurgeir ætlar að eyða afmælisdeginum í að horfa á son sinn keppa í körfubolta með Fjölni. „Ég ætla að njóta þess að horfa á hann keppa á Íslandsmótinu yfir helgina. Dóttir mín er einnig að keppa en því miður næ ég ekki að horfa á hana líka. Ég hugsa að ég geri lítið annað yfir helgina enda miklu skemmtilegra að horfa á börnin keppa en halda einhverjar veislu. Svo er alltaf möguleiki á að konan eldi góðan mat í tilefni dagsins.“
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar