Hluthafar fá umhugsunarfrest 21. júlí 2007 00:30 Tilboð Stillu í Vinnslustöðina hefur verið framlengt um fjórar vikur.
Tilboð bræðranna frá Rifi, Hjálmars og Guðmundar Kristjánssona, í allt hlutafé Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hefur verið framlengt um fjórar vikur. Gildir það nú til klukkan fjögur, mánudaginn 20. ágúst 2007. Í tilkynningu frá Stillu segir að samkvæmt nýlegu samanburðarmati Saga Capital fjárfestingarbanka hf., á annars vegar yfirtökutilboði Eyjamanna ehf. og hins vegar samkeppnistilboði Stillu eignarhaldsfélags ehf., geti tilboð Eyjamanna ehf. ekki talist sanngjarnt. Það sé hins vegar tilboð Stillu og í samræmi við verðlagningu hlutafjár sem hluthafar í sambærilegum félögum hafa notið á undanförnum árum. Í tilkynningunni segir að ákvörðun um framlengingu tilboðsfrestsins sé tekin með tilliti til niðurstöðu matsins. Þar sem skammt sé liðið frá því að tilkynnt var um matið, og þar sem sumarfrí stendur nú yfir hjá almenningi, sé talið óvíst að allir hluthafar Vinnslustöðvarinnar hafi vitneskju um niðurstöðu fjárfestingarbankans. Tilboð Stillu í Vinnslustöðina kom fram þann 31. maí síðastliðinn og hljóðar upp á 8,5 krónur fyrir hlutinn. Það er 85 prósentum hærra en tilboð Eyjamanna ehf. upp á 4,6 krónur. Stilla og tengdir aðilar fara með ríflega fjórðungshlut í Vinnslustöðinni. Eyjamenn eiga rúmlega helming hlutafjár.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira