Íbúakosning í Hafnarfirði 31. mars 2007 05:00 Atkvæðagreiðsla íbúa í Hafnafirði í dag um fyrirhugaða stækkun Álversins í Straumsvík er mikilvægur prófsteinn á þróun íbúalýðræðis. Við erum saman að stíga mikilvægt skref og það er fagnaðarefni hversu almenn og víðtæk umræða og þátttaka bæjarbúa hefur verið á síðustu vikum. Virk þátttaka og opin og almenn skoðanaskipti eru grundvöllur lýðræðislegrar afgreiðslu. Íbúar í Hafnarfirði njóta þeirrar sérstöðu umfram aðra landsmenn að hafa rétt og stöðu til þess að fá að greiða atkvæði um þýðingarmikil mál eins og stækkun Álversins í Straumsvík. Þann rétt eigum við að nýta okkur til fullnustu. Hver sem niðurstaðan verður í kosningunum, þá er ljóst að sigurvegarar þeirra verða íbúar Hafnarfjarðar. Góð þátttaka í kosningunum eru skýr skilaboð frá íbúum um að þeir láta sig verulega skipta þróun og framtíð byggðarinnar og atvinnulífsins hér í Firðinum. Ég hef með skýrum hætti í aðdraganda kosninganna lagt ríka áherslu á ábyrga og upplýsta umræðu og að bæjarbúar fái rétta og raunsanna mynd af þeim atriðum sem máli skipta. Hafnarfjarðarbær hefur með margvíslegum hætti upplýst bæjarbúa um allar forsendur málsins á hlutlausan og ábyrgan hátt. Leitast hefur verið við að hafa gott samráð um kynningarferlið milli bæjaryfirvalda og hagsmunaðila. Fyrirtækið Capacent hefur ásamt starfsmönnum bæjarfélagsins lagt sig fram í þeim efnum. Ástæða er til að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til að skapa bæði breiða og líflega umræðu í bæjarfélaginu. Við höfum sýnt og sannað að íbúalýðræði er meira en nafnið tómt. Öll umræða síðustu vikur ber þess merki að það er ekki af ástæðulausu sem við höfum sameinast um þá ákvörðun að kveða uppúr með framhald þessa máls í almennri kosningu. Á sama hátt og bæjarstjórn hefur lýst yfir þá skulum við bæjarbúar allir vera samstilltir og sameinaðir í því að virða þá niðurstöðu sem mun liggja fyrir að kosningum loknum. Höfundur er bæjarstjóri í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Halldór 08.08.26 Halldór Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Atkvæðagreiðsla íbúa í Hafnafirði í dag um fyrirhugaða stækkun Álversins í Straumsvík er mikilvægur prófsteinn á þróun íbúalýðræðis. Við erum saman að stíga mikilvægt skref og það er fagnaðarefni hversu almenn og víðtæk umræða og þátttaka bæjarbúa hefur verið á síðustu vikum. Virk þátttaka og opin og almenn skoðanaskipti eru grundvöllur lýðræðislegrar afgreiðslu. Íbúar í Hafnarfirði njóta þeirrar sérstöðu umfram aðra landsmenn að hafa rétt og stöðu til þess að fá að greiða atkvæði um þýðingarmikil mál eins og stækkun Álversins í Straumsvík. Þann rétt eigum við að nýta okkur til fullnustu. Hver sem niðurstaðan verður í kosningunum, þá er ljóst að sigurvegarar þeirra verða íbúar Hafnarfjarðar. Góð þátttaka í kosningunum eru skýr skilaboð frá íbúum um að þeir láta sig verulega skipta þróun og framtíð byggðarinnar og atvinnulífsins hér í Firðinum. Ég hef með skýrum hætti í aðdraganda kosninganna lagt ríka áherslu á ábyrga og upplýsta umræðu og að bæjarbúar fái rétta og raunsanna mynd af þeim atriðum sem máli skipta. Hafnarfjarðarbær hefur með margvíslegum hætti upplýst bæjarbúa um allar forsendur málsins á hlutlausan og ábyrgan hátt. Leitast hefur verið við að hafa gott samráð um kynningarferlið milli bæjaryfirvalda og hagsmunaðila. Fyrirtækið Capacent hefur ásamt starfsmönnum bæjarfélagsins lagt sig fram í þeim efnum. Ástæða er til að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til að skapa bæði breiða og líflega umræðu í bæjarfélaginu. Við höfum sýnt og sannað að íbúalýðræði er meira en nafnið tómt. Öll umræða síðustu vikur ber þess merki að það er ekki af ástæðulausu sem við höfum sameinast um þá ákvörðun að kveða uppúr með framhald þessa máls í almennri kosningu. Á sama hátt og bæjarstjórn hefur lýst yfir þá skulum við bæjarbúar allir vera samstilltir og sameinaðir í því að virða þá niðurstöðu sem mun liggja fyrir að kosningum loknum. Höfundur er bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar