Mikil fjölgun hluthafa í skráðum fyrirtækjum 28. mars 2007 05:00
Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Hluthöfum í íslenskum almenningshlutafélögum fjölgaði mikið á árinu 2006 samanborið við árið 2005. Um síðustu áramót áttu um 200 þúsund fjárfestar hlutabréf í fyrirtækjum í Kauphöll Íslands sem var fjölgun um 74 þúsund hluthafa frá ársbyrjun miðað við skráð fyrirtæki í árslok 2005. Hafa ber í huga að hér er ekki um að ræða 200 þúsund sjálfstæða aðila þar sem margir fjárfestar eiga hlutabréf í fleiri en einu fyrirtæki. Fjölgunin skýrist af tveimur þáttum: nýjum félögum og arðgreiðslum í formi hlutabréfa. Innan vébanda sex félaga voru yfir tuttugu þúsund hluthafar um síðustu áramót en þetta voru Kaupþing, Exista, Landsbankinn, Hf. Eimskipafélagið, Icelandic Group og Straumur-Burðarás. Kaupþing var fjölmennasta almenningshlutafélagið í árslok en 31.730 fjárfestar áttu þá hluti í félaginu. Exista kom skammt á eftir en hluthöfum fjölgaði úr tíu í 31.410 á árinu þegar félagið var skráð á markað eftir hlutafjárútboð til almennra fjárfesta og fagfjárfesta. Þá hafði það ekki síður áhrif að Kaupþing greiddi út til hluthafa sinna aukaarð í formi eigin hlutabréfa í Existu. Þá varð veruleg fjölgun hluthafa í Hf. Eimskipafélaginu og Icelandic Group þegar Straumur-Burðarás greiddi út hluta af eigin bréfum í félögunum sem arð til hluthafa sinna. Hf. Eimskipafélagið, sem áður nefndist Avion Group, var skráð á markað í janúar að undangengnu útboði til fagfjárfesta. Icelandair Group var einnig skráð í Kauphöll í kjölfar útboðs. Yfir 1.500 hluthafar áttu bréf í félaginu í lok árs en FL Group átti félagið að öllu leyti í upphafi ársins. Teymi fór ennfremur á markað þegar Dagsbrún var skipt upp í tvö skráð félög, annars vegar 365 hf. og hins vegar Teymi. Hluthafar í 365 fengu hlutabréf í Teymi. Hluthöfum fækkaði á milli ára í stóru fjármálafyrirtækjunum Kaupþingi, FL Group, Landsbankanum og Straumi en fjölgaði í Glitni.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira