Kynferðislegur lágmarksaldur 17. mars 2007 05:00 Fagna ber afgreiðslu allsherjarnefndar á frumvarpi til breytinga á kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. Í upphaflega frumvarpinu var gert ráð fyrir óbreyttum kynferðislegum lágmarksaldri, þ.e. að kynlíf með börnum sem orðin væru 14 ára væri refsilaust, að því gefnu að barnið hefði ekki verið tælt til verknaðarins. Rökin fyrir þessu voru samkvæmt greinargerð að rannsóknir sýndu að unglingar á Íslandi byrjuðu fyrr að stunda kynlíf en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum. Þá segir orðrétt: „Hvaða skoðun sem menn kunna að hafa á þessari staðreynd breytir það ekki því að nauðsynlegt er að taka tillit til þessa veruleika þegar afstaða er tekin til þess hvernig háttað verði refsiákvæðum vegna kynferðisbrota gegn börnum.“ Getur verið að viðhorf íslenskra ungmenna til kynlífs litist m.a. af því að þau eru álitin fullgildir bólfélagar 14 ára? Sú afstaða sem birtist í tilvitnuðum orðum, að unglingar á Íslandi byrji fyrr en jafnaldrar þeirra á hinum Norðurlöndunum að stunda kynlíf og það réttlæti lægri viðmiðunaraldursmörk að þessu leyti er röng og vinnur gegn barnavernd og ekki til þess fallin að hamla gegn kynferðislegri misnotkun barna. Er það ekki einmitt þessi hugsunarháttur sem við viljum breyta og stuðla að því að boðskapurinn verði: Börn og kynlíf fara ekki saman. Ein leiðin til þess er að hækka aldursmörkin, þannig að fullorðnir geti ekki stundað kynlíf með börnum fyrr en þau hafa að minnsta kosti lokið fermingarfræðslu! Með því að hækka aldursmörkin, þó ekki sé nema um eitt ár, höfum við gefið þau skilaboð enn skýrar en áður að börn og kynlíf eigi ekki samleið. Það er fagnaðarefni að allsherjarnefnd skuli leggja til að aldursmörkin verði hækkuð. Með því er komið til móts við sjónarmið sem ítrekað hafa komið fram í umræðu um þessi mál. Þá er ekki síst komið til móts við vilja ungmennanna sjálfra, en fram kemur í áliti allsherjarnefndar að niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem gerð var meðal ungmenna á Íslandi, sýni að ungt fólk hér á landi byrjaði seinna að lifa kynlífi en áður hafði verið talið og að meira en helmingur svarenda vildi hækka kynferðislegan lágmarksaldur, einkum stúlkur. Þetta hefur Barnaverndarstofa talið að mætti túlka sem ósk stúlkna um aukna vernd. Höfundur er kennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Sjá meira
Fagna ber afgreiðslu allsherjarnefndar á frumvarpi til breytinga á kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. Í upphaflega frumvarpinu var gert ráð fyrir óbreyttum kynferðislegum lágmarksaldri, þ.e. að kynlíf með börnum sem orðin væru 14 ára væri refsilaust, að því gefnu að barnið hefði ekki verið tælt til verknaðarins. Rökin fyrir þessu voru samkvæmt greinargerð að rannsóknir sýndu að unglingar á Íslandi byrjuðu fyrr að stunda kynlíf en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum. Þá segir orðrétt: „Hvaða skoðun sem menn kunna að hafa á þessari staðreynd breytir það ekki því að nauðsynlegt er að taka tillit til þessa veruleika þegar afstaða er tekin til þess hvernig háttað verði refsiákvæðum vegna kynferðisbrota gegn börnum.“ Getur verið að viðhorf íslenskra ungmenna til kynlífs litist m.a. af því að þau eru álitin fullgildir bólfélagar 14 ára? Sú afstaða sem birtist í tilvitnuðum orðum, að unglingar á Íslandi byrji fyrr en jafnaldrar þeirra á hinum Norðurlöndunum að stunda kynlíf og það réttlæti lægri viðmiðunaraldursmörk að þessu leyti er röng og vinnur gegn barnavernd og ekki til þess fallin að hamla gegn kynferðislegri misnotkun barna. Er það ekki einmitt þessi hugsunarháttur sem við viljum breyta og stuðla að því að boðskapurinn verði: Börn og kynlíf fara ekki saman. Ein leiðin til þess er að hækka aldursmörkin, þannig að fullorðnir geti ekki stundað kynlíf með börnum fyrr en þau hafa að minnsta kosti lokið fermingarfræðslu! Með því að hækka aldursmörkin, þó ekki sé nema um eitt ár, höfum við gefið þau skilaboð enn skýrar en áður að börn og kynlíf eigi ekki samleið. Það er fagnaðarefni að allsherjarnefnd skuli leggja til að aldursmörkin verði hækkuð. Með því er komið til móts við sjónarmið sem ítrekað hafa komið fram í umræðu um þessi mál. Þá er ekki síst komið til móts við vilja ungmennanna sjálfra, en fram kemur í áliti allsherjarnefndar að niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem gerð var meðal ungmenna á Íslandi, sýni að ungt fólk hér á landi byrjaði seinna að lifa kynlífi en áður hafði verið talið og að meira en helmingur svarenda vildi hækka kynferðislegan lágmarksaldur, einkum stúlkur. Þetta hefur Barnaverndarstofa talið að mætti túlka sem ósk stúlkna um aukna vernd. Höfundur er kennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar