Sir Tom Hunter stærstur í Jötni 14. mars 2007 06:15 Sir Tom Hunter
Jötunn Holding, sem er eignarhaldsfélag að stærstum hluta í eigu Baugs Group og Sir Toms Hunter, ríkasta manns Skotlands, eignaðist 4,5 prósent hlutafjár í Glitni í síðustu viku. Hunter tekur um helming hlutafjár í Jötni Holding, samkvæmt heimildum Markaðarins, á móti þrjátíu prósenta hlut Baugs. Óþekktur þriðji aðili kemur einnig að félaginu. Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum eignaðist Hunter um tveggja prósenta hlut í Glitni sem var settur inn í Jötni ásamt bréfum Baugs í Glitni og viðbótarhlut sem keyptur var á markaði. Eignarhlutur Jötuns er metinn á 17,7 milljarða króna miðað við gengi Glitnis í vikubyrjun. Í breska blaðinu Times um helgina kom fram að Hunter ætti einnig tæplega þriggja prósenta hlut í FL Group sem hann eignaðist í nóvember árið 2005 þegar FL jók eigið fé um 44 milljarða króna í hlutafjárútboði. Að sögn Times nemur óinnleystur hagnaður Skotans af fjárfestingunni í FL þrjátíu milljónum punda, um 3,9 milljörðum króna. Það er varla hægt að segja að Skotinn hafi setið auðum höndum í síðustu viku því ásamt því að hafa komið að stofnun Jötuns tók hann þátt í yfirtöku á byggingarfélaginu Crest Nicholson í samvinnu við bankann HBOS. Fjárfestahópurinn, sem kallast Castle Bidco, greiðir um 93 milljarða króna fyrir félagið.
Mest lesið Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Sjá meira