Fleiri horfa til fjárfestinga í orkugeira 21. febrúar 2007 06:00
Í lok síðustu viku tilkynntu Landsbankinn og Landsvirkjun á sameiginlegum blaðamannafundi um stofnun alþjóðlega fjárfestingarfélagsins HydroKraft Invest sem ætlað er að fjárfesta á erlendri grundu í verkefnum sem tengjast endurnýjanlegri orkuvinnslu. HydroKraft Invest er ætlað að leiða umbótaverkefni á sviði orkumála erlendis, einkum í Evrópu. Félagið er af svipuðum meiði og Geysir Green Energy nema hvað að áherslan er á fjárfestingar á sviði vatnsafls en ekki jarðvarma líkt og hjá Geysi. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, lagði enda áherslu á það á fundinum þar sem félagið var kynnt að nóg pláss væri í heiminum fyrir marga aðila á þessu sviði fjárfestinga. Jóhannes Geir Sigurgeirsson stjórnarformaður Landsvirkjunar sagði ekki síst horft til þess að koma inn í endurbyggingu og endurnýjun eldri virkjana, en einni væri horft til nýbygginga vatnsaflsvirkjanna, stórra sem smárra. Þar sem HydroKraft er alveg nýstofnað hefur þar ekki enn verið ráðinn framkvæmdastjóri og ekki komin endanleg mynd á starfsemina Sigurjón Þ. Árnason sagði að stofnfé félagsins væri „dágóð innlögn" en síðan yrði gengið í að afla meira fjármagns eftir verkefnastöðu hverju sinni. Landsbankinn og Landsvirkjun eiga jafnan hlut í félaginu þar sem hvor leggur til tvo milljarða króna í hlutafé. Verður síðan á næstunni safnað hlutafé hér á landi þar sem Landsbankinn hefur tryggt sölu á hlutafé í félaginu fyrir einn milljarð króna til viðbótar. Í kjölfarið á að skrá HydroKraft Invest á erlendan hlutabréfamarkað. Líkt og Geysir segjast forsvarsmenn HydroKraft byggja á innlendri sérþekkingu í orkumálum og fjáfestingarþekkingu úr fjármálageiranum sem komi félaginu í fremstu röð fjárfestingafélaga á sínu sviði.
Mest lesið Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira