Tímamótadagur í lífi Chaplins 7. febrúar 2007 05:00 Charlie Chaplin. Fimmti febrúar var mikilvægur dagur í lífi gamanleikarans Charlie Chaplin.
Fimmti febrúar var merkisdagur á margan hátt í lífi breska grínleikarans Charlies Chaplin. Það er hins vegar fjarri að þessi tímamót, sem voru af tvennum toga, hafi gerst á sama árinu því sautján ár liðu frá fyrsta merkisdeginum fram að þeim næsta. Fyrsti merkisdagurinn var hinn 5. febrúar árið 1919 þegar Chaplin stofnaði kvikmyndafyrirtækið United Artists ásamt Hollywoodstjörnunum Douglas Fairbanks og Mary Pickford, sem jafnframt var ein hæstlaunaða leikkona Bandaríkjanna með eina milljón Bandaríkjadala í laun fyrir hverja mynd. Fjórði stofnandinn var svo bandaríski leikstjórinn D. W. Griffith. Fyrirtækið var upphaflega stofnað sem framleiðslufyrirtæki fyrir listamennina og horfðu þau til þess að með því gætu þau haft meiri áhrif á myndir sínar en ef þau heyrðu undir önnur fyrirtæki. United Artists fékk ekki góðar undirtektir samkeppnisaðila fyrirtækisins enda var haft eftir Richard A. Rowland, forstjóra kvikmyndafyrirtækisins Metro Pictures, að nú hefðu sjúklingarnir tekið hælið yfir. Í fyrstu horfðu stofnendurnir til þess að framleiða fimm kvikmyndir hver undir merkjum United Artists. En svo fór ekki því þegar starfsemi hófst árið 1920 hafði framleiðslukostnaður við kvikmyndir rokið upp úr öllu valdi auk þess sem dagar stuttra kvikmynda voru liðnir. Það var því snemma ljóst að markmið stofnendanna gætu seint staðist. Fjórum árum síðar var reksturinn svo orðinn þungur í vöfum og taprekstur fram undan. Þótt United Artists hafi gengið í gegnum nokkrar breytingar um tíðina er kvikmyndaframleiðsla fyrirtækisins enn í fullum blóma og framleiðir það myndir á borð við Hótel Rúanda og Capote. Á meðal hluthafa er bandaríski stórleikarinn Tom Cruise, en hann gekk til liðs við fyrirtækið eftir að bandaríski kvikmyndarisinn Paramount Pictures sleit samningum við hann eftir 14 ára samstarf. Þennan sama dag árið 1936, sautján árum eftir stofnun United Artists, var meistaraverk Chaplins, Nútíminn frumsýnt undir merkjum fyrirtækisins. Um talsverð tímamót var að ræða fyrir Chaplin enda var þetta síðasta þögla kvikmyndin sem leit dagsins ljós. Myndin var þó ekki með öllu þögul því rétt undir lok hennar fékk rödd Chaplins að hljóma lítillega í fyrsta sinn á hvíta tjaldinu. Leikarinn tók sér fjögurra ára hlé eftir þetta. Næsta mynd hans var Einræðisherrann, fyrsta talmynd leikarans, þar sem grín var gert að Adolf Hitler.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira