Dell tekur við Dell 7. febrúar 2007 03:30 Michael Dell. Stofnandi bandaríska tölvurisans Dell hefur sest að nýju í forstjórastól fyrirtækisins til að snúa rekstri fyrirtækisins til betri vegar. MYND/AFP
Michael Dell, stofnandi bandaríska tölvurisans Dell, settist í forstjórastól fyrirtækisins að nýju um miðja síðustu viku eftir að fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins tók pokann sinn í kjölfar lélegrar afkomu tölvurisans á síðasta rekstrarfjórðungi nýliðins árs. Michael Dell stofnaði fyrirtækið á háskólaárum sínum árið 1984 og sat sem forstjóri í tuttugu ár en þá tók hann við stöðu stjórnarformanns. Kevin Rollins, fráfarandi forstjóri Dell, þykir ekki hafa skilað af sér góðu verki en gengi fyrirtækisins hefur dalað allt frá því hann tók við árið 2004 auk þess sem fyrirtækið hefur ekki staðið undir væntingum markaðsaðila. Þá hafa fjármálayfirvöld í Bandaríkjunum Dell undir smásjá sinni en grunur leikur á að skekkja sé í bókhaldi fyrirtækisins. Gengi hlutabréfa í fyrirtækinu hefur hækkað um fimm prósent frá forstjóraskiptunum. Greinendur segja engu að síður að Michael Dell verði að spýta í lófana eigi honum að takast að laga til í rekstrinum og hindra að Hewlett-Packard, helsti keppinautur fyrirtækisins, geti nýtt sér tækifærið og náð til sín stærri sneið á tölvumarkaðnum vestanhafs.
Mest lesið Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira