Fastur í bifreiðinni í hálftíma 1. febrúar 2007 03:00 Það mátti varla tæpara standa þegar ökumanni bílsins var bjargað úr ískaldri ánni.
Karlmaður á nítjánda aldursári bjargaðist úr bráðum lífsháska í gær eftir að bifreið hans hafði hafnað úti í Ölfusá seint á þriðjudagskvöld. Manninum varð það til happs að bíllinn staðnæmdist á grynningu í ánni og fór því ekki nema á hálft kaf. Að sögn lögreglunnar á Selfossi fékk hún tilkynningu um slysið á ellefta tímanum. Á þeim tíma lá ekki fyrir hversu margir voru í bifreiðinni og því var allt tiltækt björgunarlið kallað út. Maðurinn var búinn að sitja í bílnum í um hálftíma þegar björgunarsveitarmenn á slöngubáti komu honum til hjálpar. Hann var þá nánast meðvitundarlaus og mjög kaldur. Ekki gekk áfallalaust að koma honum á land því að það drapst á báðum utanborðsmótorum björgunarbátsins með þeim afleiðingum að hann rak niður fyrir brúna og stöðvaðist á sandrifi. Þaðan var báturinn svo dreginn í land. Maðurinn var fluttur með hraði á slysadeild Landspítalans í Fossvogi en að sögn vakthafandi læknis þar hlaut hann ekki alvarlega áverka og átti að útskrifa hann þaðan í gær. Talið er að bíll mannsins hafi runnið til í hálku með ofangreindum afleiðingum. Engin vegrið eru við ána á þessum stað og slys hafa orðið þar áður. Bíllinn var hífður upp úr ánni síðdegis í gær.
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Sjá meira