Forstjórinn farinn vegna tapreksturs 24. janúar 2007 06:15 Forstjóri bandarísku fatakeðjunnar GAP hætti störfum í vikunni eftir að keðjan var rekin með tapi í fyrra, annað árið í röð. MYND/AP
Forstjóri bandarísku fataverslanakeðjunnar GAP hætti störfum í vikubyrjun eftir að fyrirtækið skilaði taprekstri í fyrra. Þetta er annað árið í röð sem GAP skilar tapi vegna samdráttar í sölu. Undir fyrirtækjahatti GAP eru fatakeðjurnar Banana Republic og Old Navy. Orðrómur hefur verið uppi um að fyrirtækið hyggist losa sig við báðar keðjurnar með það fyrir augum að bæta afkomu. Forstjórinn fráfarandi, sem heitir Paul Pressler, tók við stöðunni fyrir um fimm árum og hefur ítrekað spyrnt fótum við samdrætti í sölu án sýnilegs árangurs. Hafi stjórn fyrirtæksins því afráðið að segja honum upp störfum, að sögn breska ríkisútvapsins. Þrátt fyrir samdráttinn er gert ráð fyrir að Pressler, sem er fimmtugur að aldri, gangi út með 14 milljóna dala starfslokasamning. Það svarar til rúmra 969 milljóna íslenskra króna. Hlutabréfamarkaðurinn tók uppsögn Presslers vel því gengi hlutabréfa í GAP hækkaði um 2,5 prósent í viðskiptum gærdagsins. Þetta eru góðar fréttir fyrir hluthafa fatakeðjunnar því gengi hlutabréfa í GAP hafa fallið um heil 62 prósent frá aldamótum. Robert Fisher, sonur stofnanda GAP sem á 37 prósenta hlut í fyrirtækinu, hefur tekið við forstjórasætinu á meðan arftaka er leitað.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira