Viðskipti erlent

Nýtt lággjaldafélag í Asíu tekur á loft

Vélar nýs lággjaldaflugfélags í Asíu taka á loft og sinna flugi á milli Asíu og Evrópu í júlí.
Vélar nýs lággjaldaflugfélags í Asíu taka á loft og sinna flugi á milli Asíu og Evrópu í júlí. MYND/AFP

Asíska lággjaldaflugfélagið Air Asia greindi frá því á blaðamannafundi á föstudag að félagið ætli að setja á laggirnar nýtt lággjaldaflugfélag í samstarfi við flugfélagið Fly Asian Express. Nýja félagið mun heita Air Asian X og sinnir millilandaflugi á milli Kína, Indlands og Evrópu frá og með júlí í sumar.

Þá hyggur félagið á samstarf við fleiri lággjaldaflugfélög.

Air Asia var stofnað fyrir tæpum sex árum. Tvær farþegaflugvélar flugu undir merkjum þess í SA-Asíu í fyrstu en þær eru nú 20 talsins. Félagið hefur vaxið mikið undanfarin misseri og hefur félagið brugðist við aukinni eftirspurn með því að kaupa hundrað A320 farþegaþotur frá Airbus. Þá lýsti Tony Fernandes, stofnandi flugfélagsins, því sömuleiðis yfir á blaðamannafundinum, að svo geti farið að hundrað þotur verði keyptar til viðbótar.

Kvisast hefur út að verð á farmiðum félagsins verði með minnsta móti, allt niður í 2,84 pund aðra leiðina frá Malasíu til Lundúna í Bretlandi. Það svarar til tæpra 288 íslenskra króna.

Allt var á huldu um fréttir af Air Asia frá byrjun síðustu viku þegar félagið greindi frá því að stór tilkynning yrði birt í vikulokin. Fjölmiðlar veltu lengi vöngum yfir fréttunum og töldu jafnvel að félagið ætlaði í samstarf við önnur lággjaldaflugfélög, jafnvel bresku félögin Easyjet og Virgin. Sá grunur reyndist ekki á rökum reistur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×