Hlutafjárútboð í Marel í vikunni 11. september 2006 16:40 Hörður Arnarson, forstjóri Marel. Mynd/E.Ól.
Hlutafjárútboð Marels fer fram á miðvikudag og fimmtudag þar sem 75 milljón hlutir verða boðnir til sölu. Þetta jafngildir rúmlega 31 prósents hlutafjáraukningu í Marel og er liður í því að styðja frekari vöxt félagsins. Í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans í dag segir að Marel hafi á síðustu mánuðum keypt fyrirtæki á sama sviði, meðal annars danska matvælavélaframleiðandann Scanvægt, sem hafi verið helsti keppinautur Marels. Tvöfaldast velta félagsins vegna fyrirtækjakaupa á árinu og gera áætlanir ráð fyrir frekari ytri vexti. Ennfremur segir í Vegvísinum að gengi bréfa Marel í útboðinu sé 74 krónur á hlut, sem er rúmum 5 prósentum undir meðaltali síðasta mánaðar en um 0,2 prósent yfir meðalverði síðustu 3 mánaða. Heildarsöluvirðið í útboðinu er 5,55 milljarðar króna. Af 75 milljón hlutum sem boðnir verða út bjóðast hluthöfum 30 milljónir hluta í forgangsréttarútboði. Sami fjöldi hluta verður boðinn fagfjárfestum og í almennt útboð fara 15 milljónir hluta. Hver fjárfestir í almenna útboðinu getur skráð sig fyrir 10.000 hlutum eða 740.000 krónum að hámarki. Marel mun gefa út lýsingu vegna hlutafjárhækkunarinnar eigi síðar en við upphaf útboðsins en fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka Íslands hefur umsjón með útboðinu og sölutryggir bankinn útboðið að fullu.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira