Sjö vikur án viðskipta 23. ágúst 2006 07:00 Kauphöll íslands Forstjóri Kauphallarinnar segir bara tímaspursmál hvenær iSEC tekur við sér. Mikilvægt sé að Kauphöllin bjóði ungum og vaxandi fyrirtækjum upp á þennan kost.
Engin viðskipti hafa átt sér stað á hinum nýja iSEC-markaði Kauphallar Íslands. Opnað var fyrir viðskipti á markaðnum þriðja júlí síðastliðinn. Hampiðjan er enn sem komið er eina félagið á markaðnum. Haraldur Pétursson, sérfræðingur KB banka, segir iSEC-markaðinn ágætis hugmynd sem komið hafi fram á röngum tíma. "Þetta snýst náttúrulega allt saman um peninga og ef að þeir fást ekki er betra að einfaldlega bíða þar til rætist úr. Hugmyndin er alls ekkert dauðadæmd, sérstaklega ef ástand markaða batnar eins og við reiknum með að gerist nú í haust og vetur." iSEC-markaðurinn er einkum ætlaður sprotafyrirtækjum og eru skráningarskilyrði ekki jafn ströng og á aðallista Kauphallarinnar. Upphaflega stóð til að opna markaðinn skömmu eftir síðustu áramót en tafir urðu á. Mörg fyrirtæki hafa verið orðuð við skráningu; þeirra á meðal 3-Plús og CCP. Þá hugði íslensk-bandaríska líftæknifyrirtækið Cyntellect á skráningu en varð frá að hverfa í kjölfar misheppnaðs hlutafjárútboðs. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að vissulega hafi menn gert sér vonir um kraftmeiri gang hins nýja markaðar. Hins vegar sé engin ástæða til að örvænta; enda eðli smærri markaða að velta sé lítil. "iSEC er spennandi kostur fyrir ung vaxandi fyrirtæki í leit að fjármagni. Við teljum það skyldu okkar og hlutverk að bjóða fyrirtækjum þennan kost." HB Grandi hefur þegar verið afskráð af aðallista Kauphallarinnar og hyggur á skráningu á iSEC-markaðinn annan október. Þórður býst við fimm til tíu félögum til viðbótar á næstu tveimur misserum. "Við teljum það bara tímaspursmál hvenær iSEC-markaðurinn tekur við sér."
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Siggi Raggi um vaxtakjör bankanna: „Þetta láta Íslendingar bjóða sér kynslóð eftir kynslóð“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira
Siggi Raggi um vaxtakjör bankanna: „Þetta láta Íslendingar bjóða sér kynslóð eftir kynslóð“ Viðskipti innlent
Siggi Raggi um vaxtakjör bankanna: „Þetta láta Íslendingar bjóða sér kynslóð eftir kynslóð“ Viðskipti innlent