Kaupmáttur hefur ekki rýrnað 23. ágúst 2006 06:15 Ingvar Arnarson Greiningardeild Glitnis segir að hækkun launavísitölunnar í júlí megi rekja til samkomulags ASÍ og SA.
Launavísitalan hækkaði um 1,7 prósent á milli júní og júlí og hefur vísitalan hækkað um 10,2 prósent síðastliðna tólf mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Til samanburðar mældist 8,6 prósenta verðbólga á sama tímabili. Ingvar Arnarson, sérfræðingur hjá greiningardeild Glitnis, segir hækkunina margfalda á við það sem vanalega sjáist í þessum mánuði. Megi rekja hækkunina til samkomulags Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins í síðasta mánuði. Í samkomulaginu felst 5,5 prósenta launahækkun og fimmtán þúsund króna hækkun ofan á lægstu kauptaxta. Ingvar segir það áhugavert að á síðastliðnum tólf mánuðum hafi laun hækkað um 10,2 prósent, sem merki að kaupmáttur hafi í raun ekki dregist saman þrátt fyrir að verðbólguskotið sé að ganga yfir. Það hefur hægt á vexti kaupmáttar en hann hefur ekki rýrnað á þessu tólf mánaða tímabili, segir hann. Ingvar segir ennfremur mikla spennu á vinnumarkaði og aðstæður þannig að hætta sé á launaskriði. Þessi hækkun og það ástand sem ríkir getur skapað undirliggjandi verðbólguþrýsting og getur dregið úr líkum á að Seðlabankinn nái verðbólgumarkmiðum sínum í bráð, segir hann en bætir við að greiningardeild Glitnis standi við spá sína um að markmið bankans náist í lok næsta árs.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira