Microsoft stefnir hátt með Zune 13. desember 2006 06:45 Microsoft stefnir á að selja allt að eina milljón spilastokka á fyrri hluta næsta árs. MYND/AFP
Bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft stefnir að því að selja rúm milljón eintök af Zune, nýja spilastokknum sem fyrirtækið framleiðir, á fyrri helmingi næsta árs. Microsoft setti Zune-spilarann á markað um miðjan síðasta mánuð til höfuðs iTunes-spilastokknum frá Apple, sem hefur selst í um 70 milljónum eintaka á síðastliðnum fimm árum. Zune-spilarinn á hins vegar nokkuð í land með að velta iTunes-stokknum úr toppsætinu því sala hefur verið minni en væntingar stóðu til og er hann í 5. sæti yfir mest seldu spilastokka af svipaðri gerð með einungis um tveggja prósenta markaðshlutdeild. Þá hafa gagnrýnendur tækjabúnaðar og neytendur ekki gefið spilaranum jafn góða dóma og horft var til. Talsmaður Microsoft er þrátt fyrir þetta bjartsýnn á framhaldið og segir söluna munu taka við sér. „Við horfum ekki á sölutölur á milli vikna heldur á heildarsöluna yfir lengra tímabil,“ sagði hann. Zune-spilarinn er með 30 gígabæta hörðum diski og er með þráðlausri tækni, sem gerir notendum hans kleift að senda myndir og lög á samþjöppuðu formi sín á milli án þess að snúrur komi nokkuð við sögu.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira