Nissan framleiðir umhverfisvæna bíla 13. desember 2006 07:15 Nissan ætlar að setja umhverfisvænan bíl á markað á næsta ári. Markaðurinn/AFP
Japanski bílaframleiðandinn Nissan Motors svipti hulunni af umhverfisvænum bíl sem gengur fyrir etanólblöndu á bílasýningu í Los Angeles í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Framleiðsla hefst á næsta ári. Bíllinn er liður í bættri umhverfisstefnu fyrirtækisins en vél hans byggist á tækni frá Toyota, einum helsta keppinauti Nissan í Japan. Nissan kynnti sömuleiðis í vikunni nýja áætlun til næstu fjögurra ára sem draga á úr útblæstri bíla. Eftir 2010 vonast fyrirtækið til að kynna til sögunnar rafmagnsbíl, en hann yrði sá fyrsti sinnar tegundar í Japan. Nissan hefur hafið samstarf við franska bílaframleiðandann Renault um smíði á tveggja lítra bíl, sem líta mun dagsins ljós á fyrri helmingi næsta ári. Nissan stóð framarlega á tæknisviðinu í japanska bílaiðnaðinum á árum áður. Með bættri umhverfisstefnu og markmiðum til næstu ára sem stuðla eiga að minni útblæstri stefnir fyrirtækið að því að verða leiðandi á sviði umhverfisvænna og sparneytinna bíla á heimsvísu. Sérstaklega er horft til bandaríska markaðarins en ökutækjaeigendur þar í landi hafa margir snúið baki við bandarískum bensínsvelgjum í kjölfar snarpra hækkana á eldsneyti á þessu ári og horfa til sparneytinna japanskra bíla.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira