75 prósenta samdráttur íbúðalána 20. júlí 2006 07:00 101 Skuggahverfi Íbúðalán viðskiptabankanna námu 34,4 milljörðum króna á mánuði þegar mest lét. Síðan hafa þau dregist saman um sjötíu og fimm prósent. Sérfræðingur segir samdráttinn eðlilega afleiðingu þrengri lánsskilyrða og erfiðra markaðsaðstæðna.
Íbúðalán viðskiptabankanna hafa dregist saman úr tæpum 34,4 milljörðum króna á mánuði, þegar mest var í október 2004, í 7,5 milljarða í maí síðastliðnum samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands. Samdrátturinn nemur sjötíu og fimm prósentum. Nýjum íbúðalánum bankanna hefur fækkað úr rúmlega þrjú þúsund í tæplega átta hundruð á sama tímabili. Tólf mánaða lækkun nemur sextíu prósentum. Markaðshlutdeild bankanna á íbúðalánamarkaði er nú fjörutíu og fimm prósent, Íbúðalánasjóðs litlu minni og lífeyrissjóðanna um tólf prósent. Vala Pálsdóttir, upplýsingafulltrúi Glitnis, segir þrjá meginþætti valda því að íbúðalán bankans hafa dregist saman; í fyrsta lagi hafi hægst á hjólum efnahagslífsins og eðlilegt að fólk haldi að sér höndum þegar kemur að stórum fjárfestingum. Þá hafi hægst á fasteignamarkaði síðan bankarnir fóru fyrst inn. Síðast en ekki síst hafi vaxtahækkanir orðið til þess að dregið hefur úr eftirspurn eftir íbúðalánum Við finnum fyrir þessum samdrætti eins og allir aðrir. Það var mikil gróska hérna þegar bankarnir fóru inn á íbúðalánamarkað og svo virðist sem nú séu að koma fram ákveðin mettunaráhrif. Þrengri lánsskilyrði og erfiðari markaðsaðstæður vegna hærri raunvaxta og lægra lánshlutfalls eru helstu orsakir samdráttar íbúðalána að mati Magnúsar Árna Skúlasonar, forstöðumanns Rannsóknarseturs í húsnæðismálum við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Hann segir markaðinn leita í jafnvægi eftir sprenginguna sem varð þegar bankarnir hófu innreið sína á íbúðalánamarkað í ágúst 2004 Þá verði skilyrðin mun hagstæðari áður og eftirspurnin eykst gríðarlega. Svo þegar allir eru búnir að skipta um húsnæði, liggur við einu sinni, er ekki nema eðlilegt að hægist á og markaðurinn leiti í jafnvægi. Árni segir að spennandi verði að fylgjast með leigumarkaðnum á næstunni Það getur vel farið svo að fólk leiti í auknum mæli eftir leiguhúsnæði. Mér finnst ekki ólíklegt að leigumarkaðurinn taki við sér.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Viðskipti innlent Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Fleiri fréttir Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Sjá meira